Hópferðir

Persónuleg upplifun undir styrkri stjórn og sérhæfðri leiðsögn

Flestar hópferðir Óríental miðast við litla hópa. Á það sérstaklega við um landkannanir og ævintýraferðir. Því að í stórum er ekki hægt að tryggja, að upplifun hvers ferðalangs verði eins góð og hugsast getur.
Vissulega getur þó engin ferðatilhögun og ekkert skipulag tryggt upplifun ferðamanns. Það er undir hverjum og einum hvernig hann nýtir sér aðbúnað og tilhögun, eða hvað hann greinir og upplifir í umhverfinu. En með því að stilla fjölda ferðafélaga í hófi eru stórauknar líkur á því, að hægt sé að þjónusta betur og veita hverjum einstaklingi þá aðstoð, sem þörf er á.

Við skipulag hópferða er reynt að stilla af dagsplön þannig, að ákveðinn tími sé sameiginlegur og stýrður – yfirleitt fyrri partur dags, en stór hluti dagsins sé frjáls og undir hverjum og einum komið, hvernig hann nýtir hann. Fararstjóri er að sjálfsögðu ávallt tilbúinn að veita ráðleggingar og aðstoða hvern farþega utan skiplags tíma, en það er trú Óríental og stefna, að hver farþegi eigi að vera hvattur til, og eiga kost á, að upplifa framandleika Asíu á eigin vegum, svo reynslan verði sem persónulegust og dýrmætust.

Sérhópar geta ákveðið eigin brottfarir!

Rétt er að vekja athygli á, að allar auglýstar hópferðir Óríental er hægt að framkvæma á öðrum tímum í breyttri eða óbreyttri mynd fyrir sérhópa.
Hafið samband við sala@oriental.is og leitið tilboða og upplýsinga.

Gönguferð um N-Taíland og Laos

Þetta er ævintýralegur leiðangur um fjöll og firnindi Norður Taílands og Laos auk góðra daga í hinum ljúfu bæjum Luang Prabang og Chiang Mai og stuði stórborgarinnar Bangkok með verslunartækif...

Read more
 
Hjólað um Búrma

Velkomin til Búrma. Í þessu landi er orðið ferðamaður ekki til, ef þú kemur með í þessa ferð verður þú gestur í Búrma – ekki ferðamaður. Hér er farið um svæði sem fáir ferðamenn spyrna áfram á...

Read more
 
Hjólað um Suður-Laos

Hjólreiðaferðin hefst í Norð-austur Taílandi þar sem hjólað er á landsvæði sem nefnist Ísaan og er frægt fyrir taílenska kántrímúsík, kryddaðan mat og sérlega einlægt og léttlynt fólk. Einskon...

Read more
 
Taíland - Borg og strönd

Gamla næturdrottning Austurlanda. Bangkok, eða Englaborgin í austri. Með sitt vafasama orðspor, með sína geggjun, andstæður og óendanlega fjölbreytileika. Nokkuð skökk og skæld, sumstaðar myrk...

Read more
 
Taíland og Laos

Þig setur hljóðan að ganga um forn stræti Luang Prabang því kyrrðin er tær sem sumarnótt í Flatey. Það skín einhver ójarðnesk og fögur heiðríkja úr feimnum andlitum íbúanna, sem lifa enn samkv...

Read more
 
Taílaodía

Á rúmri viku eru þrír framandi staðir rannsakaðir í þessari kjarnmiklu ferð um Bangkok, Luang Prabang og Angkorhofin.

Read more
 
Tour d'Angkor - hjólaferð

Sannkölluð landkönnun með átökum og ævintýrum við hæfi og getu allra fullfrískra. Hjólreiðaferðin er alls um 550 km löng. Í upphafi ferðar gefst kostur á að kynnast leyndardómum og spennu Bang...

Read more
 
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.