08 juli 2008

Bútík hótel

Á sjöunda áratug síðustu aldar opnaði fyrsta svokallaða “boutique”-hótelið, Tandjung Sari í Sanurbæ, á Balí. Í stað þess að fylgja stífum reglum alþjóðlegra hótelkeðja, sem miðast við stjörnugjöf, er unnið eftir þjóðlegum sérkennum á hverjum stað, smáhýsi á dreif um blómstrandi garða koma í stað herbergja í háhýsum. Bútík-hótel er lúxus en með mjúkum áherslum, manneskjulegri og hlýlegri gististaður en alþjóðlegar staðlaðar? hótelkeðjur geta boðið upp á. Flest bútík-hótel reyna jafnframt að kynna handverk og sérkenni síns byggðarlags og reka oft þar til gerða verslun með muni og minjagripi frá handverksfólki.

Íslendingar kynntust fyrst bútíkhóteli þegar Rúnar Marvinsson, Sigríður Gísladóttir og fleiri eftirleguhippar tóku Hótel Búðir á Snæfellsnesi á leigu og reistu til fornar virðingar þann dásemdarstað. Þar var stuðs við gamlan íslensk-danskan stássstofustíl sem ekki hafði sést í þeirri mynd og þannig framsettur í opinberu rými langa lengi á Íslandi.

Nú er bútík í tísku, sérstaklega í Asíu þar sem sífellt fleiri hótelmeistarar setja fram nýjan stíl á óhefðbundinn og djarfan hátt – en alltaf á mjúku nótunum. Sumstaðar ber þó við að reynt sé að fela bágborinn efnahag með bútík galdralausnum því yfirleitt er unnið með ódýr og “ófín” efni í bútíkhótelum en þessi stíll byggist fyrst og fremst á smekk, þekkingu og agaðri meðferð efna og því er erfitt að fela grunna buddu með bútíktöfrum. “Understated luxury” er einföld lýsing engilsaxa sem oft segir allt sem segja þarf. Fátækrasjarmi sagði Sigríður Auðunsdóttir fv. Búðastjóri og bústýra á Við Tjörnina sl. 20 ár og fór þar nærri, enda velkunnug að föndra sínar vistarverur a la boutique.

Bútíkhótel flokkast sjaldnast undir stjörnugjöf hefðbundinna hótela en geta verið jafnódýr sem dýr en aldrei stór. Stíll getur verið hvort heldur glæsilegur eða látlaus en aldrei yfirgengilegur eða montinn.

 
Back to News
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.