12 juli 2008

X-in í Sanur

Sjómenn eiga kærustu í hverri höfn og Sanur er hafnarbær. Benoahöfnin, sem liggur suðvestur af Sanurbæ, er eina almennilega höfnin á Suður Balí. Þótt hún sé aðgrunn og þar liggi fyrst og fremst skútur og skemmtibátar við kajann, þá kemur þangað nokkuð af fraktskipum – og með þeim koma sjóararnir sem eiga kærustu í Sanur, eða því vilja Sanurbúar að minnsta kosti trúa.

Þegar ekið er um hverfið sem liggur að Jalan Danau Poso götu, ber mikið á að hús séu merkt x auk húsnúmers. Þetta eru hús sem líta út fyrir að vera ósköp venjuleg íbúðar- eða skrifstofuhús með hefðbundnu hliði, múrveggjum og innkeyrslu. Á daginn ber ekki á neinu en þegar nóttin færist yfir kviknar á rauðu ljósunum. Undir götuljósinu, framan við húsin, standa dólgarnir en inni í görðunum bíða kærusturnar feimnar í skugganum.

Þessar misfríðu kærustur eru nær allar frá Mið- og Vestur Jövu þar sem fátækt og mannmergð hefur hrakið þær til starfa langt frá heimahögunum. Sagan segir að einu balísku kærusturnar sem þarna finnist, séu frá norðurhlutanum, Singarajakonungsdæminu en ég sel það ekki dýrara en ég keypti. Hljómar ögn eins og fullyrðing Taílendinga um að allir betlarar í Bangkok séu frá Kambódíu og Laos.

Sjóararnir í Sanur aka um á stórum jeppum, voldugum límósínum eða koma í mínívönum og eru oft og tíðum japanskir í útliti eða rauðbleikir af sólböðum með ljóst skandinavískt hár. Þeir sjást aka hikandi inn í garðana og bruna í burtu stundu síðar. Ekki ber mikið á gleiðu og vaggandi göngulaginu sem einkenndi íslenska sjómenn hér í denn.

Já sjómennskan, já sjómennskan, já sjómennskan er ekkert grín...

Viktor Sveinsson

 
Back to News
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.