Balí

Einfaldlega paradís

Eyjan Balí er heimsþekkt ferðamannaparadís og því kemur það flestum á óvart, hversu ósnortin og afskekkt eyjan er í raun. Hvergi viðhaldast hefðir og rótgróið trúarlíf á eins látlausan hátt og þar. Þrátt fyrir að Balíbúar hafi tekið stór og djörf skref inn í "nútímann" á fáum áratugum virðast þeir ekki hafa þurft að fórna hinum sterku og einstöku hefðum sínum. Þetta er einstakt í heiminum.

En af hverju Balí? Þar má kynnast dularfullri og seiðandi menningu eyjarskeggja, sjá dans barongskrímslanna, hlusta á bambus-sílófóna, láta dáleiðast af þokkafullum fingrum og stjörfum augum legong-dansaranna, falla í djúpan trans með kecakdanshópi, færa hindúaguðinum Visnú fórnir, þó varast beri að taka þátt í galdraathöfnum.

Náttúrufegurð Balí er stórkostleg; þar skiptast á tignarleg fjöll og grösugir dalir, beljandi ár og sindrandi lækir, eldstöðvar og tær fjallavötn, hvítar strendur og háir sjávarhamrar. Landslagið er því að nokkru leyti kunnuglegt Íslendingum, en veðrið og menning íbúanna af framandi toga. Jafnframt má nefna, að græni liturinn virðist stundum vera grænni á Balí en annars staðar í heiminum.

Í þessu fagra umhverfi er margt hægt að gera sér til skemmtungar og dægradvalar. Ólíkt mörgum hefðbundnum ferðamannastöðum Íslendinga er fleira til dundurs en húðlitarbreyting á ströndinni og næturgölt á krám. Á Balí má til að mynda stunda margs konar æsandi útiveru með leiðsögn fagmanna, svo sem köfun, brimbrettabrun, fjallaklifur, fljótasiglingar, kajakadól, skútusiglingar, hjólreiðar, stórfiskaveiðar og margt, margt fleira. Það eru nefnilega ríkar ástæður fyrir því, að Balí er vinsæl ferðamannaparadís, jafnvel í huga þeirra, sem ala manninn dags daglega í heitum geislum sólar.

En þrátt fyrir allt þetta er fólkið sjálft helsta aðdráttarafl þessar einstöku paradísar. Það er stolt af eynni sinni og menningu, en þó alls ekki hrokafullt. Það gleðst yfir því, að geta deilt unaðssemdum sínum með aðkomufólki. Hvergi sjást dýpri og dularfyllri augu - hvergi jafn seiðandi en um leið háttvís bros. Fólkið hefur sterkari sameiginleg einkenni en flestar þjóðir í heiminum, en þekkir ekki þjóðarrembing og telst formlega ekki vera sérstök þjóð.

Balí er lítil hindúísk eyja, sem tilheyrir fjölmennasta múslimaríki í heimi, Indónesíu, þar sem sérstök þjóðabrot hafa oft á tíðum átt erfitt uppdráttar. En íbúarnir svara ofbeldi með brosum, óvild með vinsemd og gestum með góðvild, eins og guðir þeirra hafa boðað og þeir treysta.

Það þarf ekki að leita langt yfir skammt. Eyjan er aðeins um 1/20 af stærð Íslands og því er auðvelt að njóta alls þess besta, sem landið og íbúarnir hafa upp á að bjóða.

Lýðveldið Indónesía (B...

Republik Indonesia

Skjaldarmerki Balí

Forsætisráðherra:
Susilo Bambang Yudhoyono

Stjórnarhættir:
Lýðræði

Höfuðborg:
Indónesíu er Jakarta
Denpasar er stjórnarsetur Balí.

Opinbert tungumál:
Bahasa Indónesía
(Bahasa Balinese)

Sjálfstæði:
1945 (frá Hollendingum)

Þjóðhátíðardagur:
17. ágúst

Íbúafjöldi í Indónesíu:
237.512.355 (júlí 2008)

Íbúafjöldi á Balí:
3.150.000 (2000)

Lífslíkur við fæðingu:
70,46 ár

Þjóðabrot í Indónesíu:
Javar 45%
Sundar 14%
Madurar 7,5%
Malæjar 7,5%
Aðrir 26%

Þjóðabrot á Balí:
Balíar 89%
Aðrir 11%

Trúarbrögð í Indónsíu:
Íslam 88%
Mótmælendakristni 5%
Rómv.-kaþólska 3%
Hindúismi 2%
Búddismi 1%
Önnur 1%

Trúarbrögð á Balí:
Hindúismi 93,2%
Íslam 4,8%
Kristni 1,4%
Búddismi 0,6%

Stærð Indónesíu:
1.919.440 km2

Landstærð Balí:
(5.632 km2)

Ræktað land:
11,03%

Hæsta fjall:
Puncak Jaya (5.030 m)
Gunung Agung (3.142 m) á Balí

Landsframleiðsla á mann:
$3.600

Skipting vinnuafls:
Landbúnaður 45,5%
Iðnaður 11,8%
Þjónusta 41,7%

Hlutfall fólks undir fátæktarmörkum:
16,7%

Gjaldmiðill:
Indónesísk Rúpía (IDR)

Regntími:
September til apríl.

Þjóðsöngur Indónesíu

Byggt á upplýsingum úr THE WORLD FACTBOOK CIA - Central Intelligence Agency

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.