
Benoa
Afvikið, traust og margreynt
Benoanes, eða Tandjung Benoa einsog staðurinn heitir fullu nafni er kyrrlátur og friðsæll strandbær sem liggur á austurhluta ness á syðsta hluta Balí. Benoanesið veitir hafnarsvæðinu skjól þar sem Benoahöfnin situr hinum megin við álinn rétt við Sanurbæ.
Þrátt fyrir að vera ekki stór bær hefur staðurinn uppá allt það að bjóða sem ferðfólk sækist eftir s.s. frábær hótel, góða strönd, vatnasport, fræga veitingastaði og alla almenna þjónustu. Veitingastaðurinn Bumbu Bali, sem nú hefur útibú víða um eyjuna, opnaði fyrsta og þekktasta staðinn á Benoa sem enn er talinn eitt besta veitingahús Balí.
Það sem ekki finnst á Benoa er hægt að sækja til háværari og kröftugri nágranna s.s. Kuta sem er í um hálftíma akstursfjarlægð. Enn nær er svo Nusa Dua hverfið sem er lokað hótelsvæði sem frá grunni var skipulagt sem slíkt og er vel búið flestri þjónustu en nánast án upprunalegs balínísks kjarna.



