Formsatriði við komu og brottför
Fylla þarf út bæði komu- og tollaeyðublaðaform áður en farið í gegnum vegabréfs- og tollskoðun.

Flugvallarskattur
Það er 25 US$ skattur á alþjóðaflugum og er ekki innifalinn í flugmiða. Það verður því að greiða þennan skatt á flugvellinum við brottför. Brottfararskattur á innanlandsflugum er 11,000 Rp og á millilandaflugum 100,000 Rp.

Vegabréf og áritanir
Vegabréf þurfa að gilda 6 mánuðum umfram áætlaða brottför frá Balí. Íslendingar þurfa vegabréfsáritun sem gefin er út við komu til landsins og kostar hún 25 US$. Hægt er að greiða með ýmsum gjaldmiðlum en gengi US$ er oftast hagkvæmast. Áritunin gildir í einn mánuð. Strangt til tekið er ekki hægt að framlengja vegabréfsárituninni en þó þekkjast dæmi um að slíkt hafi verið gert. Hér er dæmi um komueyðublað .

Tollvarningur
Tollreglur Balí heimila ferðamönnum að koma inn í landið með 1 ltr. af áfengi, 200 sígarettur, 50 vindla eða 100 gr. af tóbaki, en einnig hæfilegt magn af ilmvatni. Það er stranglega bannað að koma inn í landið með kínversk jurtalyf. Hins vegar er heimilt að flytja ávexti, blómaplöntur og gæludýr inn í landið. Engar hömlur eru á hversu mikið reiðufé fólk hefur með sér inn í landið, en hins vegar takmarkast fjárhæðin við hámark 5 milljónir rúpía, þegar farið er út úr landinu. Hér er dæmi af toll skyrslu framhlið og bakhlið

Peningar, kreditkort og ferðatékkar
Gjaldmiðill Balí er rúpía (Rp). Auðvelt er að nota kreditkort og ferðatékka. Hraðbanka er víðsvegar að finna. Athugið að iðulega er dýrara að skipta ferðatékkum eða erlendum gjaldmiðli á hótelum. Betra er að sinna slíkum erindum í næsta banka.

Læknisþjónusta
Fagleg læknisaðstaða er nokkuð góð í Balí. Það er auðvelt að vitja alþjóðlegra spítala sem búa yfir góðri læknisþjónustu en vert er að minna á að slík heimsókn getur verið kostnaðarsöm.
Það er skynsamlegt að fá sér haldgóða ferða-og sjúkratryggingu áður en haldið er á vit Balí-ævintýra.

Drykkjarvatn
Við vörum ferðamenn við að drekka kranavatn á Balí. Drekkið einungis vatn af flösku með innsiglað tappalok. Hvort sem þið eruð á hágæða hótelum eða veitingastöðum er skynsamlegt að forðast ísmola sem boðnir eru út í drykki. Minniháttar magaónot eru alltaf möguleg þegar ferðast er í framandi löndum. Takið með hefðbundin lyf sem geta aðstoðað ykkur við óþægilega iðrakveisu.

Rafmagn
Á Balí er notast við 220 volta straum eins og á Íslandi. Sumstaðar til sveita getur styrkur straums sveiflast og þykir það ekki fara vel með raftæki.

Síma og netsamband
Internettenging er næstum allstaðar í Balí, en víðast hvar er tengingin hæg eða léleg. Það er hægt að finna internet kaffihús hér og þar, en rétt að minna á hægvirka nettengingu, sem getur reynt á þolrifin.
Farsímar virka vel í Balí. Þar er líka hægt að kaupa innlend frelsis SIM kort og nota ámeðan á dvöl stendur. Flest hótel eru með langlínusamband til útlanda, svokallaða IDD símalínu í hótelherbergjunum.

Tungan
Mál balíbúa er balíniska og ríkismálið er indónesíska. Margir innfæddir tala líka ensku og auðveldar það ferðagestum að eiga samskipti við heimafólkið.

Trúmál
Um það bil 93% balíbúa eru hindúatrúar, 4.8% eru múslímar, 1,4% eru kristnir og 0.6% eru búddistar.

Almennir opnunartímar skrifstofa og verslana
Ríkisreknar skrifstofur eru opnar á virkum dögum mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 08:00 til 15:00 og á föstudögum frá kl. 08:00-12:00. Bankar eru opnir mánudaga – föstudaga kl. 08:00-15:00 og á laugardögum 08:00-12:00. Flestar verslanir eru opnar alla daga frá 08:00 til 21.00. Undantekningar eru lögskipaðir frídagar.

Varningskaup
Í Balí er tilvalið að versla áhugaverða hluti eins og tágavörur, útskorna trémuni, húsgögn, Batik þrykkt klæði, silki og handofin klæði. Þjóðlagatónlist Balí heitir Gamelan og gætu verið áhugaverð kaup fyrir tónlistarunnendur. Séu keypt húsgögn er mikilvægt að biðja sölufólkið um við, sem hefur verið sérstaklega þurrkaður fyrir rakastigið á Íslandi, annars er hætta á að viðurinn spryngi með tímanum og eyðileggist smám saman.

Þjórfé
Asísk þjóðfélög byggist mikið á stéttskiptingu og um leið ákveðnu yfirlæti. Þetta eru þjóðfélög þar sem hefð er fyrir háum herrum og lágum þjónum. Þjónusta er yfirhöfuð meiri og betri en við þekkjum í Evrópu. Þessu fylgja ýmsir siðir. Sá ríkari, eða í sumum tilfellum einfaldlega sá eldri, borgar yfirleitt alla veitingahúsareikninga. Það kostar að vera virtur í Asíu. Það þykir skrítinn siður að láta konu borga fyrir sig eða þá að skipta upp reikningum á veitingastöðum.
Reglur um þjórfé eru ekki stífar í Balí eins og víða þekkist í nágrannalöndum Asíu. Sum hótel hafa fyrir reglu að taka ekki við þjórfé en flest hótel taka við þjórfé þó svo að þjónustugjaldið sé innifalið í reikningnum. Það á aðeins við að veita slíkum stöðum þjórfé ef gesturinn er virkilega ánægður með þjónustuna.
Um veitingastaði gilda aðrar reglur þar er þjónustugjaldið ekki innifalið í reikningnum og viðeigandi að gefa 5 - 10% þjórfé.
Það er siður en ekki nauðsyn að greiða fararstjórum og bílstjórum þjórfé.

Leigubílagjald
Á Balí er metragjald í leigubílum og þar af leiðandi óþarfi að semja um verð áður en haldið er af stað í bílferð með leigubílstjóra.

Veðurfar og landslag
Bali liggur aðeins 8 gráður sunnan við miðbaug og því eru einungis tvær árstíðir á eyjunni. Regntímabilið er frá nóvember fram í apríl og sólríkt þurrkatímabil er frá maí til október. Hitastigið er óbreytt á milli árstíða og meðalhitinn er um 28°c allt árið um kring, ásamt háu rakastigi. Balí er eldfjallaeyja og á norðurhluta hennar liggur röð af eldfjöllum, þar sem fjallstindurinn Gunung Agung stendur hæst upp úr röðinni, alls 3,142 m hár. Fallegar strendur ramma eyjuna inn í grænleitt og trópísk landslag með ofgnótt af regnskógi, hrísgrjónaekrum, hvítum sandi og ávaxtagörðum.

Tími og ártal
Það er sami tími allt árið um kring, 8 klst á undan Íslandi og GMT-tíma. Balíbúar nota bæði vestrænt dagatal en líka hið sérstaka balíalmanak. Balídagatalið samanstendur af tveimur mismunandi kerfum Sasih og Pawukon sem starfa hliðstætt. Þegar mánaðardagar Sasih og Pawukon eru lagðir saman verður árið heilir 420 dagar.

Sasih miðast við 12 mánaða tunglgöngu um sporbaug jarðar. Það tekur tunglið 29 daga, 12 klukkustundir og 44 mínútur að fara einn hring um jörðu. Í hverjum mánuði er svokallað nýtt tungl og er miðað við að nýr mánuður hefjist ávallt daginn eftir hið nýfædda tungl. Í dagatali Sasih eru nokkrir dagar sem eru mikilvægari en aðrir. Það á við um afmælisdaga bænahofa og hátíðir sem eru haldnir á dögum sem heita tilem og purnama. Einn merkilegasti dagur ársins er klárlega Nyepi eða nýársdagur. Balíbúar trúa því, að á þessum degi svífi illir andar hafsins yfir eyjuna. Það vill engin eyjaskeggi fá illan anda yfir sig. Til að tryggja öryggi sitt á Nyepideginum fylgir Balífólkið fjórum meginreglum, en þær eru:

  • 1. Að nota ekki eld eða rafmagn, því það getur kviknað í og orðið þess valdandi að fólk þurfi að flýja út úr húsum sínum.
    2. Að vera ekki á ferli utandyra.
    3. Að stunda ekki neina vinnu eða frístundaiðju.
    4. Að fasta allan daginn til að skynja betur eigin þolinmæði og vera með stjórn á tilfinningum sínum.

Fólk er sem sagt heima fyrir í farbanni og talar einungis í lágum hljóðum. Það er engin á ferli nema í neyð. Ef sjúklingur þarf til dæmis læknisaðstoð eða þarf að fara upp á spítala, þurfa bæði sjúklingurinn og læknirinn að fá skriflegt ferðaleyfi áður en lagt er af stað. Allir sitja heima, fasta í heilan sólarhring og stunda djúpa íhugun, fyrirbænir og hugleiðslu. Fyrir vikið verður andrúmsloft eynnar afar magnþrungið og dýrin virðast vera þátttakaendur í athöfninni. Það heyrist ekki múkk í strætishundum.

Þegar velja á heppilega daga til að stunda arðbær viðskipti, til uppskeru og sáningu, bjóða til veislu eða halda mikilvægar athafnir í bænahofum þá er stuðst við Pawukon almanakið og tekið mið af bestu dagsetningum þess. Í dagatali Pawukon eru sex mánuðir og hver mánuður telur 35 daga og sjö vikur. Samanlagt er almanaksár Pawukon 210 dagar. Mikilvægustu vikur mánaðarins eru þriðja, fimmta og sjöunda vikan. Á þessum vikum eru viðhafðar serímóníur og heilagir dansar stignir í bænahofum og fólk tengir sig dýpra inn í bænir og hugleiðslu.

Flug og flugþreyta
Flugþreytan getur sótt sterkt á fólk eftir langt flug og miklar breytingar á tíma og yfirferð tímabelta.

Hér koma nokkur góð ráð og skýringar.

Flugið:

  • Spáið í hvernig tíminn er best nýttur til svefns í fluginu m.v. á hvaða tíma þið lendið - þ.a.s. reynið strax að stilla ykkur inná tímabelti áfangastaðar.
  • Svefntöflur, eyrnatappar, svefnkragar, rakakrem, svefnleppar, vatn og vaselín/varasalvi er gott að hafa við hendina. Rakakremið og vaselínið gleymist oft, en þetta tvennt er til að verjast sérlega þurru lofti flugvéla. Eftir 10-11 klst. í þurrkinum geta varir orðið mjög þurrar og slímhúð í nefi orðið viðkvæm. Söngvarar sem þurfa sérstaklega að gæta að hálsi og raddböndum fljúga sumir hverjir með rykgrímu til að binda rakann í útöndunni og viðhalda þannig betri rakastigi í koki og nösum.
  • Svo er það náttúrulega þetta týpíska með að hreyfa sig og drekka vel af vatni.
  • Einhverstaðar stendur að maður eigi ekki að drekka áfengi í löngu flugi, en margur segir það vera svo hentugt til að drepa tímann að það sé þess virði.

Eftir lendingu:

  • Kenningar Bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA eru á þann veg að fyrir hvert tímabelti þurfi einn dag til aðlögunar. Skýring spíritista er sú að sálin sé svo laus úr líkamanum að hún haldi ekki í við þotuhraðann og því taki það hana lengri tíma að ná á áfangastað.
  • Sagt er að verra sé að fljúga austur en vestur.
  • Asískt húsráð við flugþreytu er að borða nóg af engifer. Það er öllu jafnan ekki vandamál að finna það í matnum hérna.
  • Vestrænt húsráð er Melatonin. Athugið að Singapore Airlines selja það í flug-fríhöfn sinni.
  • En fyrst og fremst er þetta spurning um að stilla sig inná nýjan tíma. Að vera sem mest utandyra við þá birtu sem ríkir og beita sig þeim aga sem þarf til að stilla sig strax inná staðartíma varðandi svefn. Þar geta svefnpillur nýst vel.
  • Athugið að flest lyf fást án lyfseðla í apótekum í Asíu.
  • Haldið áfram að drekka nóg af vatni.
  • Þau einkenni sem þið getið átt von á að upplifa eru þreytuköst, sjóriða, meltingartruflanir, sljóleiki og sálarleysi.
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.