Sanúr

Hægur taktur í kúltúr og galdri

Strandbærinn Sanúr hefur sérstöðu á Balí. Daglegt líf og þarfir ferðamanna fara þægilega saman við hið skrautlega trúarlíf Balíbúa. Fólk af erlendum uppruna sem flust hefur til Balí hefur margt fundið sér heimili í þessum viðfeðma en látlausa bæ. Það setur einnig sinn svip á mannlífið og þann fínlega tón sem er að finna á ýmsum veitingastöðum og í þjónustu.

Á Sanúr eru fleiri músíkbarir en diskótek og gott úrval af látlausum og rómantískum veitingastöðum í stað þeirra smartheita sem finnast á Seminyak og Kutaströndinni hinum megin á nesinu.

Sanúr skiptist eftir endilöngu með hraðbraut sem í daglegu tali er kölluð By-pass og liggur samsíða ströndinni. Fjær ströndinni eru íbúðahverfi og lítið þangað fyrir ferðamenn að sækja. Strandmegin skiptist bærinn svo aftur á miðri strandlengjunni með Hyatt hótelinu og risavöxnum garðinum í kring. Rétt við ströndina liggur aðalgatan sem nefnist Jalan Mertasari syðst og rétt við Hyatt hótelið nefnist gatan Jalan Danau Tamblingan. Frá þessari aðalgötu liggja litlar hliðargötur sem kallast “gang” niður að ströndinni á milli strandhótela og lítilla veitingastaða. Fjær ströndinni en við sömu götu eru einnig hótel og veitingastaðir auk ýmissar þjónustu. Þetta er bær sem auðvelt er að átta sig á og rata um.

Af einhverjum ástæðum hefur prestastétt hindúa, brahmana, mikil völd í Sanúr og margt í daglegu lífi heimamanna er bundið meiri hefðum en víða annars staðar á eyjunni. Einnig er Sanúrbær þekktur fyrir að vera höfuðstaður galdra – jafnt hvíta sem svarta galdurs. Þetta gerir Sanúr enn meira spennandi.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.