Seminyak

Öndvegis strönd í fágðuðum bæ

Það er erfitt að greina hvar Kuta endar og Seminyak tekur við. Fyrir ókunnuga er það hreinlega ómögulegt. Legian gatan liggur um miðja þessa bæi samhliða ströndinni norður suður og byggðin er órofin. En ef að er gáð sést að andrúmsloftið breytist nokkuð eftir því sem norðar er komið og inní Seminyak. Þar verður allt rólegra og byggð verður ögn dreifðari nyrst.
Norðan við Seminyak tekur svo við Umalashverfið sem byggist upp af bústöðum útlendinga og leiguvillum. Mitt á milli Kuta og Seminyak er svo svæði sem stundum er aðgreint sem Legianhverfi.

Kuta er stuð, tattú, brimbretti og villtar nætur. Seminyak er stilltara, fágaðra og yfirleitt dýrara svæði. Þar finnast hótel sem eru heimsþekkt fyrir hönnun og yfirbragð s.s. Oberoi og The Legian. Einnig eru þar glæsilegir og eitursmart veitingastaðir einsog Ku Te Da. Vissulega finnast líka flottir veitingastaðir og uppskrúfuð hótel á Kuta, en tónninn er samt aldrei eins fínn og á Seminyak.

Seminyakströndin er engu síðri en strönd Kuta en öldurnar eru ekki eins magnaðar og þ.a.l. eru brimbrettahetjurnar fjarri en sólböð og sjóbusl meira stundað í Seminyak.

Stór kostur við að búa í Seminyak er að þar býðst gott næði og ögn meiri lókal stemmning, en þó er Kuta rétt steinsnar frá þar sem hægt er að velja úr enn fjölbreyttara úrvali veitinga- og skemmtistaða, þar sem verslun og þjónusta er meiri og götu- og næturlífi litríkt og spennandi.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.