
Ombak Putih skútan í Indónesíu
Þessi myndarlega Bugis-skonnorta hefur siglt um Indónesísk höf síða 1998. Heimahöfnin er Benóahöfn á Balí en frá þeirri exótísku eyju fer skútan á enn framandi slóðir. Flóres, Lombok, Kómódó, Kúmba, Súmbava og Ambon eru meðal þeirra eyja sem Ombak Putih kastar akkerum við – og það er svo sannarlega þannig því víða eru engar hafnir á viðkomu- eða náttstöðum bátsins og því verður að liggja við akkeri í kyrrum flóa á meðan róið er í land til að kynnast eyjaskeggjum og náttúru.
Hvítalda köllum við skútuna uppá hið ylhýra því Ombak Putih þýðir hvít alda og þó hún sér ekki dæmigert lúxusfley er báturinn vel útbúinn með 12 tveggja manna loftkældum káetum hver með sitt baðherbergi. Gott rými er uppá dekki svo vel fer um farþega og alltaf er hægt að finna góðan stað fyrir gott næði.
Skoðið fjölbreyttar siglingaleidir Ombak Putih um Indónesíu sem birtast á listanum hér til hægri.



