Silolona skútan

Silolona skútan var smíðuð árið 2004 á Súlavesíeyju af skipasmiðum af ætt Konja þar sem hefðir og handverk skipasmíða hefur viðhaldist í gegnum aldirnar. Enn er sterk hefð og mikil þörf á seglskútum í Indónesíu og því er þekking bæði á smíði og siglingum lifandi og virk. Silolona er svokölluð “Pinisi” skúta, en svo kallast lögun hennar með tvö möstur, langbyggð og rennileg.

Hvar sem Silolona siglir vekur hún athygli fyrir íburð og glæsileika. Vandaðar “bútík” innréttingar, stórt sóldekk, einstakur “fusion”matur og samheldin áhöfn gera þetta lúxusfley að einstökum fararskjóta til móts við ævintýri og unað.
Leiðir Silolona liggja um Kómódóeyju með sínum illilegu drekum, á fund við einangraða ættbálka á Papúa, í dásemdir Balí eða framanleika Súlavesí.

Hér eru nánari upplýsingar um Phinisiskúturnar

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.