Ubud

Ójarðneskur fjallabær

Það er einhver útópískur hljómur í Ubud sem fer ekki fram hjá neinum. Bærinn hefur verið þekktur sem miðja handverks og lista í gegnum tíðina og sl. áratugi hefur sú menning eflst með komu erlendra listamanna. Ubud er víðfeðmur bær sem liggur um hæðir og dali Giyaniar. Kjarninn er við gamla markaðinn og konungshöllina þar sem stiginn er barong dans á hverju kvöldi og gammalan tónlist hljómar. Hvergi á Balí er eins auðvelt að nálgast og kynnast arfleifð og menningu eyjarskeggja en í Ubud. Einstakt handverk jafnt í gömlum tréskurði, silfurverki og steinhöggi sem nútímalegum málverkum og skúlptúr. Þarna eru reyktir blúsbarir og djassbúllur, hippaleg kaffihús í bland við smarta veitingastaði og glæsilega vínbari. Allt er bútík og flott. Það er einhver hönnun og stæll á öllu þarna þó svo að allt sé svo gamalt og rótgróið.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.