Burma

Þetta er Búrma!

“Þetta er Búrma” skrifaði enski rithöfundurinn Rudyard Kipling, “og það mun birtast ykkur ólíkt öllum öðrum löndum”. Þótt Kipling hafi þekkt vel undur Asíu, enda búsettur á Indlandi í fjölda ára, varð hann gagntekinn af því einstaka landi, sem í dag nefnist formlega Myanmar, en flestir þekkja sem Búrma og kjósum við að nota það nafn áfram.

Búrma hefur verið í heimsfréttunum á síðustu misserum vegna deilna um stjórnarfar, þar sem takast á lýðræðisöfl og hin ríkjandi herforingjastjórn. En því miður hafa fjölmiðlar heims ekki gefið jafn mikinn gaum að fegurð og sérstöðu landsins sjálfs.

Það tóku ekki allir Vesturlandabúar eftir því þegar Búrma varð að Myanmar. En samhliða nafnbreytingu landsins tók hin forna höfuðborg landsins upp nýtt nafn, þegar Rangoon varð að Yangon. Jafnframt flutti ríkisstjórnin aðsetur sitt og stjórnsýslumiðstöðvar árið 2006 til nýreistrar borgar, Naypyidaw, sem í dag telst höfuðborg landsins. Þessar breytingar gefa þó ekki rétta mynd af landi og þjóð, þar sem litlar breytingar hafa orðið undanfarna áratugi.

"Sérstakt", "vingjarnlegt" og "margbreytilegt" eru dæmi um lýsingarorð, sem margir ferðalangar til Búrma nota í umsögnum sínum. Þetta lýsir vel því landi, sem verið hefur eitt lokaðasta land í heimi þar til fyrir rúmum áratug. Sú staðreynd, að landið hefur verið nánast sambandslaust við umheiminn, hefur einnig viðhaldið stemningu liðinna tíma, þar sem bæir og sveitir bera vart merki 21. aldar og fólkið er það einlægt og gestrisið, að enginn verður ósnortinn. Það segir nokkuð um hugarþelið í garð útlendinga, að heimamenn eiga engin orð sem samsvarar "ferðamaður", heldur nota þeir orðið "gestir" yfir alla aðkomumenni.

Búrma er víðfeðmnast allra ríkja á meginlandi Suðaustur-Asíu. Það teygir sig 2.000 km. frá suðri til austurs, og 900 km. frá austri til vesturs. Búrma nær yfir svæði, sem er stærra en samanlagt flatarmál Bretlandseyja og Frakklands.

Þriðjungur landsins er fjalllendi og búa þar ekki færri en 135 þjóðarbrot. Víðar gresjur og breið fljót einkenna miðhluta landsins, en fjallgarðar skera það meðfram landamærum Taílands og alla leið upp að rótum Himalæjafjalla, við landamæri Indlands og Kína. Syðsti hluti landins liggur að Bengalflóa í Andamanhafi, en þangað rennur höfuðfljót landsins, Irrawaddy, sem hefur um 2.000 km. vatnasvæði, þar sem Búrma er frjósamast og þéttbýlast.

Áfangastaðir Óríental í Búrma eru meðal annarra þessir:

Yangon er ljúf og þægileg borg, þrátt fyrir að vera stærsta borg landsins með um 6 milljónir íbúa. Hún státar meðal annars af andblæ nýlendutímans og höfuðhofi landsins, hinu gullna Shwedagon musteri.

Mandalay var höfuðborg hins síðasta forneldis Búrmamanna og var gerð ódauðleg á Vesturlöndum í samnefndu ljóði Kiplings.

Inlevatn er einhver sérstæðasti staður í Suðaustur-Asíu með fljótandi híasintugörðum, þorpum á stultum og hinum sérstöku Intha-fiskimönnum, sem róa með hinu einstaka leggja-áralagi.

Bagan og musterisvellirnir eru hafsjór af hofum og furðar fáa að staður þessi sé oft talinn með mestu undrum veraldar.

Gullhöfði er gulllagður klettur og telst einn helgasti staður Búrma.Þar er hár af Búdda er varðveitt í staðarhofinu. Sólarupprás við Gullhöfða er einstök stund.

Pindaya-hellarnir innihalda hundruði þúsunda af helgimyndum Búdda í margbreytilegum útgáfum og stærðum; þær elstu frá 11 öld.

Monywa-bærinn á bökkum Chindwin-fljóts er myndarlegt sveitaþorp með glæstum hofum, 100 helgum banjantrjám og hinum sérstæðu Po Win Daung hellum, sem hafa að geyma þúsundir fornra veggmynda frá daglegu lífi íbúa eins hinna fornu konungdæma.

Viktoríufjall teygir sig 3.150 metra yfir sjávarmál og frá rótum þess í 1400 metra hæð, þarsem lítil þorp Chinfólksins sitja, liggja göngustígar upp eftir fjallinu til útsýnisstaða sem hvergi eiga sér samsvörun í heiminum.

Sambandsríkið Búrma

Pyidaungzu Myanma Naingngandaw

Konungur:

Yfirmaður herforingjastjórnar:
Than Shwe

Stjórnarhættir:
Herforingjastjórn

Höfuðborg:
Naypiydaw

Stærsta borg: Rangoon (Yangon)

Opinbert tungumál:
Búrmíska;
ýmsar mállýskur jafnframt viðurkenndar

Sjálfstæði:
1948 (frá Bretlandi)

Þjóðhátíðardagur:
4. janúar

Íbúafjöldi:
47.758.181 (júlí 2008)

Lífslíkur við fæðingu:
62,94 ár

Þjóðabrot:
Búrmar 68%
Shanar 9%
Karenar 7%
Rakínerar 4%
Kínverjar 3%
Indverjar 2%
Mónar 2%
Aðrir 5%

Trúarbrögð:
Búddismi 89%
Baptismi 3%
Kaþólska 1%
Íslamd4%
Animismi 1%
Önnur 2%

Stærð lands:
678.500 km2

Ræktað land:
14,92%

Hæsta fjall:
Hkakabo Razi (5.881 m)

Landsframleiðsla á mann:
$1.900

Skipting vinnuafls:
Landbúnaður 70%
Iðnaður 7%
Þjónusta 23%

Hlutfall fólks undir fátæktarmörkum:
32,7%

Gjaldmiðill:
Kyat (MMK)

Regntími:
Júní til september

Þjóðsöngur Búrma

Byggt á upplýsingum úr THE WORLD FACTBOOK CIA - Central Intelligence Agency

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.