
Bagan
Hafsjór af musterum
“Stór, framandi og dularfull birtast þau í þokumistrinu snemma morguns líkt og óljós minning um ævintýralegan draum…” sagði William Somerset Maugham um Bagan hofin. Þar sem þau sitja á Musterisvöllum nánast einsog hafsjór af fleiri en 3000 stúpuhofum er sýnin draumkennd og ójarðnesk.
Bagan var áður einhver merkasta miðstöð búddisma í Suð-Austur Asíu og þó flest hofin séu löngu yfirgefin og rústir einar þá ríkir enn helgur andi á þessum sléttum við bakka Irrawaddyfljótsins. Flestar byggingarnar eru frá 12 og 13 öld og er talið að alls hafir verið reistar um 10.000 stúpur og hof á Musterisvöllunum sem þekja um 40 ferkílómetra. Umfang og fjöld er þvílíkur að ekki er ólíklegt að gestir uppgötvi að þeir eru einir að njóta útsýnis og sögu sem seitlar úr hverri rúst innan um hrísgrjónaakra og pálmalunda. Það er öndvegis leið að ferðast þarna um í hestvagni eða á reiðhjóli.
Veldi Bagan varð ekki langlíft því 1287 lögðu herir Kublai Khan svæðið í rúst því konungurinn neitaði að greiða skatta til Mongólsku stríðsherranna. Eftir það hélt Bagan áfram að vera byggð munkum en pólitískt afl var aldrei aftur endurreist þar.
Enginn ætti að sækja Bagan heim án þess að upplifa sólsetur eða sólarupprás á þessum guðdómlega stað. Að sigla á Irrawaddyfljótinu og virða fyrir sér mannlífið á bökkum þess ætti einnig að vera skylda hvers ferðamanns sem vill anda vel að sér höfugleika Bagan.
Anandahofið er eitt stærsta og best varðveitta hofið í Bagan og er oft nefnt höfuðhof staðarins. Upprunalega var það byggt 1105 og varð byggingarbragurinn fyrirmynd margra síðari bygginga Bagan. Þarna standa fjórar risa tekkstyttur af Búdda sem breyta um svip eftir því hvaðan litið er á þær - úr fýlusvip í gleðibros. Rétt við er Ananda Okkaung sem er eitt af fáum múrsteinshofum sem enn er uppistandandi og virkt í Bagan.
Tharabahliðið. Rústirnar af aðalhliði Bagan eru elstu rústir Bagan og teljast frá 9 öld. Þarna er að finna einu borgaralegu menjar Bagan sem eru tvær styttur reistar fyrir anda “nata” systkynanna Mahagiri og Shwemyitna sem voru líflátin þarna.
Shwezigonhofið er elsta og stærsta hofið í Bagan og skartar sérlega fallegum bjöllulaga turni. Hofið er eitt það mikilvægasta og helgasta fyrir íbúa Búrma því það er sagt geyma viðbein og eina af tönnum Búdda.
Wekkyi-in Bugyaukgyihofið er suður af Shwezigon og ber þetta hof ólíkt yfirbragð því indversk áhrif eru augljós í byggingarstíl þess.
Htilominlohofið er tveggja hæða bygging hlaðin úr rauðum múrstein, byggt árið 1211 af Htilominlo konungi og státar af því að vera stærsta bygging Bagan.
Thatbyinnyuhofið var byggt 1244 og er hæsta bygging Bagan (62 m).
Popafjall rís hátt yfir Musterisvelli þar sem það mælist 1518 metrar yfir sjávarmáli. Í huga heimamanna er þetta helgur staður en þó meira tengdur andatrú heimanna en búddisma.





