Fararheill í Búrma

Flugvallarskattur
Það er 10$ brottfararskattur á millilandaflug sem er ekki innifalinn í flugmiða. Það verður því að greiða þann skatt á flugvellinum við brottför. Ekki þarf að greiða brottfararskatt í innanlandsflugi.

Formsatriði við komu til landsins
Fylla þarf út bæði komu- og tollaeyðublað áður en farið í gegnum vegabréfs- og tollskoðun.
Hver ferðamaður má hafa að hámarki 2000 bandaríkjadollar meðferðis í lausafé. Ef ferðamaður hefur yfir 2000$ í lausafé ber þeim skylda til að tilkynna það og verður öll umfram upphæð tekin af þeim og henna haldið þar til ferðamaðurinn fer úr landi. Sú afgreiðsla er iðulega skjót, einföld og lipur.
Athugið: EKKI SKIPTA erlendri mynt í skiptibankanum á flugvellinum, því það er 50% minna verðgildi á myntskiptum þar heldur en í öðrum skiptibönkum landsins.

Vegabréf og áritanir
Vegabréf þurfa að gilda 6 mánuðum umfram áætlaða brottför frá Búrma. Íslendingar þurfa vegabréfsáritun sem Óríental sér um að gefin sé út við komu til landsins og kostar það 20$. Greiða þarf í bandaríkjadollurum við komu. Gildir áritun í 28 daga. Refsigjald – 3$ per dag - er fyrir að dvelja lengur en áritun gildir.
Þegar ferð til Búrma er bókuð er mikilvægt að senda Óríental samtímis eftirfarandi upplýsingar af vegabréfi þess er ætlar að ferðast til Búrma. Óríental sér um að undirbúa umsókn vegabréfsáritunar fyrir farþega sína. Sjálf vegabréfsáritunin er gefin út við komu til Búrma.

Til að sækja um vegabréfsáritun þarf að fylla út eftirfarandi atriði í sérstakt form sem Óríenal leggur til:

  • Fullt nafn, eins og það er ritað í vegabréfi
  • Nafn á föður
  • Vegabréfsnúmer
  • Fæðingardagur
  • Fæðingarstaður
  • Útgáfudagur og gildistími (D.O.I./D.O.E.)
  • Brottför frá Búrma.
  • Þjóðerni
  • Kynþátt
  • Trú
  • Kyn
  • Starf
  • Heimilisfang
  • Ástæða heimsóknar til Búrma
  • Flugnúmer til og frá Búrma
  • Skannað afrit af vegabréfi af blaðsíðu með andlitsmynd handhafa.

Framangreindar upplýsingar geta breyst skyndilega og eru því með fyrirvara um breytingar.
Það er á ábyrgð ferðamanns að standa rétt og vel að vegabréfs-, áritunar- og leyfismálum.
Uppfærðar upplýsingar um vegabréfsáritanir má nálgast á heimasíðu Utanríkisráðuneytisins www.utanrikisraduneyti.is

Peningar
Gjaldmiðill Búrma er kjat (MMK), ritað kyat á ensku. Það borgar sig að koma með hámarkið af lausafé til landsins. Bandaríkjadollara er hægt að nota eða skipta víða. Heppilegast er að koma með stóra dollaraseðla í stað margra smárra og gæta þess að vera ekki með seríunúmer seðla sem byrja á bókstöfunum CB því þeir eru ekki viðurkenndir í Búrma sökum gruns um fölsun. Notkun evrunnar er að aukast sérstaklega í Yangon. Aðrir erlendir gjaldmiðlar eru óalgengir. Yangonborgin býður besta skiptimarkað á gjaldmiðlum en verðgildið minnkar eftir því sem farið er lengra út á landsbyggðina. Sóðalegir peningaseðlar og ferðatékkar eru ekki viðurkenndir í landinu, gætið þess að seðlarnir ykkar séu snyrtilegir, ekki krumpaðir eða upplitaðir. Flest hótel og veitingahús taka við greiðslu í dollaramynt.

Kreditkort og ferðatékkar
Bæði kreditkort og ferðatékkar eru fátíð í Búrma. Einungis örfá hágæða hótel taka við kreditkortum gegn lágmark 3% þóknunargjaldi. Lítil kreditkortaþjónusta stafar af takmörkuðu, hægu eða óvirku internetsambandi.

Þjórfé
Asískt þjóðfélag byggist mikið á stéttskiptingu og um leið ákveðnu yfirlæti. Þetta eru þjóðfélög þar sem hefð er fyrir háum herrum og lágum þjónum. Þjónusta er yfirhöfuð meiri og betri en við þekkjum í Evrópu. Þessu fylgja ýmsir siðir. Sá ríkari, eða í sumum tilfellum einfaldlega sá eldri, borgar yfirleitt alla veitingahúsareikninga. Það kostar að vera virtur í Asíu. Það þykir skrítinn siður að láta konu borga fyrir sig eða þá að skipta upp reikningum á veitingastöðum. Reglur um þjórfé eru ekki eins stífar í Búrma einsog víða þekkist, þetta er þó að breytast og á flestum ferðamannastöðum er gert ráð fyrir að skilja eftir ca. 5-10%.
Athugið að á flestum dýrari veitingastöðum og hótelbörum og veitingastöðum er rukkað svokallað plús plús. Þ.e.a.s fyrst er lagt ofan á 10% þjónustugjald og síðan ofan á það 7% söluskattur.
Það er siður að greiða fararstjórum og bílstjórum þjórfé.

Rafmagn
Burma notar 220 volta straum einsog á Íslandi. Flestar klær eru öðruvísi en heima á Íslandi. Styttra er á milli póla og þeir flatir. Hægt er að kaupa millistykki víða. Það er algengt að rafmagnið slái. Flest hótel búa að eigin vararafafli.

Almennir opnunartímar skrifstofa og versluna
Skrifstofur eru vanalega opnar á virkum dögum mánudaga til föstudaga frá klukkan 09:30 til 16:00. Bankar eru opnir frá kl:10:00 til 14:00. Flestar verslanir eru opnar alla daga. Undantekningar eru lögskipaðir frídagar og þegar er fullt tungl. Bogyoke markaðurinn (líka nefndur Scott markaðurinn) hefur sérstöðu hvað opnunardaga varðar. Bogyoke er alltaf lokaður á mánudögum.

Tryggingar
Fagleg læknisaðstaða er takmörkuð í Búrma en Yangon býður upp á bestu aðstöðuna í þessum efnum. Óriental mælir eindregið með því að allir ferðamenn fá sér haldgóða ferða-og sjúkratryggingu áður en haldið er af stað á vit búrmískra ævintýra.

Síma og netsamband
Internettenging í Búrma er ennþá í uppbyggingu og víðast hvar er tengingin hæg og léleg. Internetið er vaktað af herforingjastjórninni og þar af leiðandi eru margar vefsíður lokaðar. Vinsamlegast athugið að flestir netpóstþjónar sem bjóða upp á fría notkun eins og t.d. Yahoo, Gmail eða Hotmail er EKKI hægt hafa aðgang að í Búrma. Netsambandið er eins og áður segir í vaxandi þróun og flest hótel hafa einhverja internetþjónustu, a.m.k. í stórborgunum Yangon og Mandalay. Það er líka hægt að finna lítil internet kaffihús en rétt að minna á hægvirka nettengingu sem getur reynt á þolinmæðinnar.
Erlend farsímanúmer virka ekki í Búrma þar sem landið hefur ekki ennþá neina samninga við erlend símafyrirtæki. Innlenda farsímakerfið er ekki í boði fyrir útlendinga. Hins vegar eru flest hótel í stórborgum landsins með langlínusamband til útlanda svokallaða IDD símalínu í hótelherbergjunum. Það er líka hægt að senda símbréf en vert er að taka fram að símtöl til útlanda og símbréf eru mjög kostnaðarsöm. Hótelin áskila sér rétt á grunninnheimtugjaldi símtala þrátt fyrir að ekki náist samband við útlönd.

Tungan
Opinbert tungumál nefnist Búrmíska, en einnig eru töluð fjöldi annarra tungumála. Búrmíska er af Tíbet-Búrmíska málstofninu sem telst undir Sínó-Tíbet málinu. Þetta er tónað mál líkt og í Taílandi og Kína. Skriftin er svokölluð Mon-skrift sem er upprunin í Brakmanmálinu frá Indlandi (Sanskrítafbrigði).
Margir innfæddir af eldri kynslóðinni tala ensku og hún er að koma aftur í tísku hjá yngri kynslóðinni.

Óheimill varningur
Samkvæmt opinberum lögum í Búrma mega ferðamenn ekki koma með fartölvur eða farsíma inn í landið. Það er þó ekki tekið strangt á því, en við minnum á að myndavélar, skartgripir og lausafé umfram 2000 $ þarf að tilkynna til tollgæslu landsins.
Útflutningur á búddalíkneskjum og fornleifum er óheimilaður. Hins vegar er í lagi að kaupa og flytja á brott eðalsteina en munið að biðja um kvittun sem er viðurkennd af yfirvöldum.
Takmarkanir á myndatöku
Athygli skal vakin á að óheimilt er að taka myndir af vettvangi herstjórnarinnar. Til dæmis má ekki taka myndir af stöðum sem tengjast hernaði s.s. hersvæðum, herstöðvum, lögreglusvæðum, hermönnum og svo framvegis.

Trúmál
Yfir 85% þjóðarinnar eru búddatrúar.

Varningskaup
Í Búrma er tilvalið að versla áhugaverða muni eins og tágavörur, útskorna trémuni, eðalsteina, slípaða steina, bronsmuni, silfurskartgripir, silki og handofin klæði.

Tími og ártal
Sami tími allt árið sem telst 6:30 klst á undan Íslandi og GMT-tíma. Öllu jafnan notast búrmar við hið vestræna ártal, en þó bregður fyrir hinu búddíska . Árið 2008 er 2551 hjá búddistum. Það munar 543 árum.

Veðurfar
Búrma hefur líkt og flest önnur lönd suðaustur Asíu þrjár árstíðir. Suðvestur regntímabilið hefst í lok maí eða byrjun júní og lýkur í enda septembermánaðar. Regntímabilið skellur einna mest á Yangon, síðdegis og kvöldskúrar eru tíðir en önnur landsvæði eru þurrari. Á regntímabilinu er loftslagið mun rakara og það getur reynst sumum ferðalöngum óþægilegt. Í október er þurrkatímabil og þá fellur hitastigið einnig niður um nokkrar gráður sem gleður margan ferðamanninn. Í marsmánuði stígur hitastigið aftur upp alveg þar til regntíminn hefst aftur eins og fyrr segir í maílok.
Vinamlegast athugið að nyrsti hluti Búrma er mun norðar en aðrir staðir í Suð-Austur Asíu og þar er sannarlega vetur frá nóvembermánuði fram til febrúarloka. Ferðafólki er bent á að hafa með sér hlýjan fatnað því morgnarnir eru oft æði kaldir, sérstaklega á fjallasvæðum eins og í Shanríki (Kalaw, Inle Lake, Pindaya, Kengtung og Putao). Hótelin eru yfirleitt hvorki með hitakerfi eða eldstæði. Munið að taka með ykkur ullarnærföt.

Drykkjarvatn
Við mælum ekki með að ferðamenn drekki kranavatn í Búrma. Vatn á flösku sem hefur innsiglað tappalok er vel drykkjarhæft. Á hágæða hótelum og veitingahúsum er yfirleitt í lagi að dreypa á drykkjum með ísmolum í en öruggast er að forðast ísmola sem boðnir eru hjá götusölum eða úti á landsbyggðinni. Minniháttar magaónot eru alltaf möguleg þegar ferðast er í framandi löndum. Takið með hefðbundin lyf sem geta aðstoðað ykkur við óþægilegri iðrakveisu.

Flug og flugþreyta
Flugþreytan getur sótt sterkt á fólk eftir langt flug og miklar breytingar á tíma og yfirferð tímabelta.
Hér koma nokkur góð ráð og skýringar.

Flugið:

  • Spáið í hvernig tíminn er best nýttur til svefns í fluginu m.v. á hvaða tíma þið lendið - þ.a.s. reynið strax að stilla ykkur inná tímabelti áfangastaðar.
  • Svefntöflur, eyrnatappar, svefnkragar, rakakrem, svefnleppar, vatn og vaselín/varasalvi er gott að hafa við hendina. Rakakremið og vaselínið gleymist oft, en þetta tvennt er til að verjast sérlega þurru lofti flugvéla. Eftir 10-11 klst. í þurrkinum geta varir orðið mjög þurrar og slímhúð í nefi orðið viðkvæm. Söngvarar sem þurfa sérstaklega að gæta að hálsi og raddböndum fljúga sumir hverjir með rykgrímu til að binda rakann í útöndunni og viðhalda þannig betri rakastigi í koki og nösum.
  • Svo er það náttúrulega þetta týpíska með að hreyfa sig og drekka vel af vatni.
  • Einhverstaðar stendur að maður eigi ekki að drekka áfengi í löngu flugi, en margur segir það vera svo hentugt til að drepa tímann að það sé þess virði.

Eftir lendingu:

  • Kenningar Bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA eru á þann veg að fyrir hvert tímabelti þurfi einn dag til aðlögunar. Skýring spíritista er sú að sálin sé svo laus úr líkamanum að hún haldi ekki í við þotuhraðann og því taki það hana lengri tíma að ná á áfangastað.
  • Sagt er að verra sé að fljúga austur en vestur.
  • Asískt húsráð við flugþreytu er að borða nóg af engifer. Það er öllu jafnan ekki vandamál að finna það í matnum hérna.
  • Vestrænt húsráð er Melatonin.
  • En fyrst og fremst er þetta spurning um að stilla sig inná nýjan tíma. Að vera sem mest utandyra við þá birtu sem ríkir og beita sig þeim aga sem þarf til að stilla sig strax inná staðartíma varðandi svefn. Þar geta svefnpillur nýst vel. Athugið að flest lyf fást án lyfseðla í apótekum í Asíu.
  • Haldið áfram að drekka nóg af vatni.
  • Þau einkenni sem þið getið átt von á að upplifa eru þreytuköst, sjóriða, meltingartruflanir, sljóleiki og sálarleysi.

Yfirvikt
Að þurfa að borga fyrir yfirvikt er óskemmtilegt. Yfirviktin stafar oftast af því að búið er að versla of mikið og þá hefur kannski grynnkað verulega í buddunni. Yfirvikt er dýr og það er ekki óalgengt að fólk hafi lent í stökustu vandræðum með að greiða.
Reglan er sú að á almennu farrými mega farþegar hafa með sér 20 kíló, en öllu jafnan er ekki gert veður útaf 5 kílóum þar til viðbótar. En búast má við að fyrir hvert kíló umfram 25 sé greitt. Vissulega getur haft áhrif á ákvörðun afgreiðslufólks hvort flugvélin sé fullbókuð eða ekki. Ástæðan fyrir yfirviktarinnheimtum er fyrst og fremst til að stemma stigu við því að flugvélarnar verði of þungar. Það er því ekki hægt að hvetja fólk til að reyna að svindla með miklum handfarangri, enda getur verið eftirlit með handfarangri þegar komið er að flugvélinni.
Best er að fylgjast með því hversu mikið farangurinn er að vaxa. Oft eru baðviktir á hótelum og því auðvelt að vikta töskurnar.
Önnur leið, fyrir utan að horfast í augu við kostnað við yfirvikt, er að senda einhverja muni með almennum póstsendingum.

Öryggi:
Fylgið ávalt einföldum ráðum einsog t.d.

  • Að hunsa sjálfskipaða leiðbeinendur og ráðgjafa sem spretta víða upp á ferðamannastöðum.
  • Konur eiga aldrei að segjast vera einar á ferð. Ef svo lítur út skal því borið við að verið sé að bíða eftir eiginmanni eða karlkyns félaga.
  • Að bera ekki dýra skartgripi.
  • Að hafa í huga að það er vinstri handar umferð..
  • Að geyma verðmæti í öryggishólfum hótela (nær öll hótel Óríental eru þannig búin)
  • Að vera ekki á ferð á fáförnum stöðum seint um kvöld.
  • Að forðast strætishunda.
  • Að þiggja ekki gylliboð nuddstofa og ölstofa sem ekki hafa sýnilega framhlið.
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.