Hjólað um Búrma

Undur Bagan, framandleiki Mandalay og seiður Yangon ásamt öðrum ævintýrum í Búrma

Velkomin til Búrma. Í þessu landi er orðið ferðamaður ekki til, ef þú kemur með í þessa ferð verður þú gestur í Búrma – ekki ferðamaður. Hér er farið um svæði sem fáir ferðamenn spyrna áfram á hjóli og því eru kjöraðstæður fyrir þá sem elska að skoða náttúru, menningu og þjóð á náin og nærgætin hátt. Hjólað er rúmlega 300 km og er leiðin tiltölulega auðveld yfirferðar en stundum er þó á brattan að sækja. Uppi á fjallstindunum gefur að líta einstakt útsýni yfir forn bænahof, borgir, lönd og sveitir.

Hjólreiðaferðin hefst og endar í höfuðborginni Yangon sem enn er ljúf og þægileg borg þrátt fyrir að vera stærsta borg landsins með um 6 milljónir íbúa og státar af andblæ nýlendutímans og höfuðhofi landsins, hinu gullna Shwedagonmusteri. Ljúft er að ferðast um í rikksjó eftir hinni frægu Strandgötu, staldra við í klassískri búrmískri testofu og virða fyrir sér menjar nýlendutímans í þessum hverfum.

Siglt verður á Irrawaddyfljótinu þar sem samnefnda ferskvatns höfrunga er að finna og á bökkum fljótsins sitja lítil þorp heimamanna. Þarna slær sérlega ljúfan og hægan tón í ferðina. Dvalið verður í Mandalay, hinni fornu höfuðborg síðasta veldis Búrma sem var gerð ódauðleg í hinum vestræna heimi með samnefndu ljóði Kipling.

Hápunktur ferðarinn má segja að séu dagarnir í Bagan og á Musterisvöllum. Bagan var áður einhver merkasta miðstöð búddisma í Suð-Austur Asíu og þó flest hofin séu löngu yfirgefin og rústir einar þá ríkir enn helgur andi á þessum sléttum við bakka Irrawaddyfljótsins. Flestar byggingarnar eru frá 12 og 13 öld og er talið að alls hafir verið reistar um 13.000 stúpur og hof á Musterisvöllunum sem þekja um 40 ferkílómetra. Það skyldi enga furða að þessi staður er oft upptalinn með mestu undrum veraldar.

“Stór, framandi og dularfull birtast þau í þokumistrinu snemma morguns líkt og óljós minning um ævintýralegan draum…” sagði William Somerset Maughham um Bagan hofin. Þar sem þau sitja á Musterisvöllum nánast einsog hafsjór af fleiri en 3000 stúpuhofum er sýnin draumkennd og ójarðnesk.

Sérstakt, vingjarnlegt og margbreytilegt eru lýsingarorð sem margur ferðalangur hefur um Myanmar (eða Búrma, einsog við kjósum að nefna landið). Þetta lýsir vel landi sem hefur verið eitt lokaðasta land í veröldinni þar til fyrir rúmum áratug. Sú staðreynd að landið hefur verið svo sambandslaust við umheiminn hefur líka viðhaldið stemmningu liðins tíma þar sem bæir og sveitir bera vart merki 21. aldarinnar og fólkið er svo einlægt og gestrisið að enginn verður ósnortinn.

Til að tryggja hentuga flugleið og kost á viðbót og framlengingu á bestu ströndum Asíu er flogið til Bangkok og dvalið í einn dag til aðlögunnar í borginni.

ÁFANGAR: Bangkok 1 dagur, Yangon 4 dagar, Mandalay 2 dagar, Myingyan 1 dagur, Bagan 2 dagar, Popa 1 dagur,

Hápunktar: Hin villta tryllta Bangkok, magnaðar arfleifðir nýlendutímans og Shewadagon Pagoda bænhofið í Yangon, höfrungasýn á Irrawaddyfljótinu, hin ódauðlega borg Mandalay, musterisvellir og rústir Bagan ásamt einstöku fjallaútsýni Popa.

Helstu upplýsingar
Nafn:
Hjólað um Búrma
Lengd:
11 dagar/10 nætur
Tegund:
Hjóla- og ævintýraferð
Verð:
Kr
Skoðið líka:
Gönguferð um N-Taíland og Laos Opin Taílandferð Taíland - Borg og strönd
Sendu mér leiðarlýsingu!
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.