
Yangon
Andi nýlendutímans
Höfuðborgin státar af ríkulegri arfleifð frá nýlendutímanum auk þess að vera ból margra merkra hofa og helgireita t.d. Shewdagonmusterins.
Þrátt fyrir að 6 milljónir manna búi í borginni virkar hún ekki pökkuð einsog margar asískar borgir, það gerir kannski bragur nýlendutímans með breið stræti, myndarlega garða og torg. Sum hverfi borgarinnar líta út fyrir að hafa verið flutt óbreytt úr einhverju ensku skíri með rauð múrsteinshús umkringd fínlegum afgirtum görðum. Bestu dæmin um arkítektúr og menja nýlendutímans er að finna í kringum Sula pagóduna með Ráðhúsi borgarinnar í öndvegi, hæstaréttarbyggingin, aðal-pósthúsið, skrifstofur Ensku nýlendustjórnarinnar við Pansodanstræti og hið fagurlega endurbyggða Strandhótel.
Ljúft er að ferðast um í rikksjó eftir hinni frægu Strandgötu, staldra við í klassískri búrmískri testopu og virða fyrir sér menjar nýlendutímans í þessum hverfum.
Shewdagon
“Hinn gullni leyndardómur og glitrandi undur er sindrar undir sólargeislunum” sagði Kipling um Shewdagonmusterið. Sagt er að þessi stórkostlega bygging njóti sín best við sólsetur og þá streyma að heimamenn og pílagrímar vopnaðir myndavélum eða með bljúga bæn á vörum. Shewdagon er allra helgasti staður Búrma og á sér jafnlanga sögu og búddisminn telur. Grunnur hofsins var byggður fyrir um 2500 árum til að geyma 8 hár af höfði Búdda. Síðan hefur pagóduhofið tekið þvílíkum breytingum að ekkert er líkt með þeirri byggingu sem sést í dag og þeirri upprunalegu. Fram til ársins 1774 var pagóduturninn einungis 9 metra hár en telur nú um 109 metra. Hinn stórkostlegi bjöllulaga turn er lagður gulllaufum sem vikta um 60 tonn og krúna turnsins er lagður þúsundum demanta, rúpía og saffírsteinum.
Sulepagódan er átthyrnd 48 metra há gullin stúpa sem er staðsett í miðju borgarinnar og telst yfir 2000 ára gömul.
Kyauktagyipagódan er fræg fyrir stóra (48 metra) styttu af liggjandi Búdda.
Þjóminjasafn Búrma hefur að geyma athyglisverða muni t.d. þar á meðal 8 metra hátt ljónahásæti síðasta ríkjandi konungs Forn-Búrma sem nefndist Thibaw konungur sem ríkti í Mandalay.
Mahabandoolastræti er forvitnileg gata því þar koma saman fjölmörg þjóðarbrot Búrma.
Indverska hverfið er litríkt og seyðandi með kryddmarkaði, moskvum og skrautlegum hindúamusterum.
Kínahverfið með iðandi mannlífið leyndardómsfull lítil hof, sterkan anga reykelsa og spennadi næturmarkað.
Bogyokemarkaður, eða Scott́s-markaðurinn, er besti staðurinn til að versla búrmískt handverk, hvort heldur shan-töskur, kólóníalhægindastóla, sólhlífar, búrmíska vindla, skrautlega saronga eða annað exótískt og spennandi.
Bago er lítill bær 80 km frá Yangon sem áður nefndist Pego og var höfuðborg ríkis Monfólks sem ríktu þar fyrir um 500 árum. Í bænum er að finna stórfenglega 55 metra langa styttu af liggjandi Búdda sem nefnist Shwethalyaung og 114 metra há stúpa sem nefnist Shwemawdaw.
Gullhöfði er í um 6 klukkustundar akstursfjarlæg frá Yangon við bæin Kyaiktiyo. Kletturinn er lagður gulli og telst einn helgasti staður Búrma þar sem hár af Búdda er varðveitt í staðarhofinu. Sólarupprás við Gullhöfða er einstök stund.





