
Grand Bútan
Ævintýrið um konungsríki þrumudrekans
Ímyndum okkur konungsríki þar sem hamingja þjóðarinnar er mæld fremur en þjóðarframleiðslan, þar sem menning og hefðir hafa haldist nánast óbreyttar síðan á sjöundu öld umvafið ósnortinni náttúru og torfærum fjalllendum. Þetta er Bútan – Konungsríki Þrumudrekans.
Landkönnuðir og ferðahetjur hafa fært hinum vestræna heimi sagnir af þessum einangraða stað sem sumir vilja meina að sé fyrirmyndin að Sjangríla – hinum útópíska Edengarði sem lýst er í bókinni Lost Horizon eftir James Hilton og hefur verið mörgum ævintýraþyrstum hvatning til landkönnunar.
Í einangruðum sveitum Bútan finnast lítt þekktir minnihlutahópar og flökkuþjóðir sem haldið hafa einkennum sínum fram á okkar daga þökk sé illkleyfum fjöllum og torfærum dölum.
Í innstu fjallasölum Bútan leynast helgidómar og fögur búddaklaustur sem hafa verið mörgum heimspekingum, lærimeisturum og einsetumönnum friðarból til íhugunar og bænagjörða og sagt er að búddisminn hafi varðveist tærastur í Bútan í gegnum tíðina.
Konungsríkið Bútan hefur verið lýst sem lifandi safni, síðasta vígi hefðbundins búddisma Himanlæjafjalla og er eitt einangraðasta og afskekktasta land í heimi. Fram að krýningu síðasta alræðiskonungs árið 1974 höfðu engir ferðamenn komist til Bútan og í raun höfðu einungis fáir vestrænir vísindamenn og landkönnuður átt kost á að skoða landið. Seinni hluta síðustu aldar var 200 ferðamönnum leyft að koma til landsins ár hvert, en eftir árið 2000 hefur ferðamönnum verið auðveldaður aðgangur. Hingað til hafa færri en 10 íslendingar komið til Bútan, en nú verður breyting þar á.
Þessi fyrsta skipulagða hópferð íslendinga um Bútan mun leiða hópinn um markverðustu og fallegustu staði landsins.
ÁFANGAR: Bangkok 2 dagar, Thimpu 2 dagar, Punakha 2 dagar, Phobjikha 2 dagar, Paro 2 dagar.
Hápunktar: Hin villta tryllta Bangkok, Paro Dzong munkamusterið og Tango klaustrið í Thimpu kryddað með safaríkum sögum um þessa heilögu staði, í Punakaha er farið yfir eina af lengstu hengibrúm heims, heimsókn í Gangtay hofið í Phobjikha jökuldalnum, byggingarstíll Taksang musterið í Paro.
Helstu upplýsingar
- Nafn:
- Grand Bútan
- Lengd:
- 12 dagar
- Tegund:
- Landkönnun
- Brottför:
- 11. Október 2011
- Verð:
- 687,000 Kr





