Hið magnaða austurlenska ævintýri

Við birtum fólki hinn raunverulega asíska heim. Við sníðum framhjá matreiddum túrhestasýningum, en í staðinn reyndum við að leiða viðskiptavini okkar eftir ótroðnum slóðum, svo þeir geti uppgötvað og upplifað hin raunverulegu samfélög asíuþjóða, en ekki aðeins hinar uppsettu sýningar fyrir ferðamenn.

Við beinum sjónum okkar ekki síður að nútímamenningu – hinni asísku geggjun – en fornri og langri sögu þjóðanna. Fornleifar fara ekki neitt, en í dag er allt að gerast hér í austrinu.

Það finnast stór eða lítil ævintýri inni á litlum bar í Laos, í hjólatúr í fátæklegu úthverfi Saigon, á afvikinni gönguleið í Gullna þríhyrningnum, í musteri á Bali, í langhalabát á Mekong o.s.frv. Ævintýri má finna alls staðar, ef menn vita hvar á að leita eða hafa þor til að leita þau uppi.

Við bjóðum upplifun og unað.
Við seljum ævintýri – örugg ævintýri.

Af hverju Óríental?

  • Vegna þess, að þú vilt ekki fara troðna stíga framhjá því sem raunverulega skiptir máli.
  • Vegna þess, að þú vilt ekki ferðast með andlitið á kafi í sömu ferðabókinni og allir hinir.
  • Vegna þess, að þú vilt forðast að eyða dýrmætum ferðatíma í að reyna að átta þig á grundvallaratriðum.
  • Vegna þess, að þú hefur hugrekki til kynnast raunveruleika og fegurð framandi staða.
  • Vegna þess, að þú færð að kynnast bestu og athygliverðustu hótelunum og ljúffengasta matnum.
  • Vegna þess, að þú nýtur íslenskrar leiðsagnar, sem byggist á þekkingu og leyndardómum heimamanna.
  • Vegna þess, að þú hefur valið heildstæða þjónustu, þar sem hvert skref er vandlega varðað.

Óríental - er sérhæfð ferðaskrifastofa sem þjónar ferðalöngum um valin lönd Asíu.

Við bjóðum upplifun og unað.
Við seljum ævintýri – örugg ævintýri.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.