Einkaferðir
Settu saman draumaferðina þína!
Þeir sem kjósa að ferðast um á eigin vegum hafa úr miklu úrvali ferða að velja hjá Óríental. Hver og einn getur ákveðið brottfarardag sinn, ef flug, gisting og önnur þjónusta er á annað borð fáanleg.
Hér sést úrval af fjölbreytilegum ferðum, þar sem hver þeirra hefur ákveðinn ramma hvað snertir dagafjölda og samsetningu áfangastaða, auk þess sem þjónusta hefur verið ákvörðuð. En það er í höndum ferðalanga sjálfra að ákveða, á hvaða hóteli er gist og þar með endanlegan kostnað við ferðina.
Með því að haka við mismunandi hótel sést hvert verðið myndi verða og þegar niðurstaða hefur fengist er formið fyllt út og fyrirspurnin send til okkar.
Undantekningarlaust er innifalið flug, gisting, ferðir til og frá flugvöllum og þjónustustöðum og allt annað sem tilgreint er sérstaklega. Ávallt er um einkaakstur að ræða, þar sem tekið er á móti hverjum aðilum af enskumælandi fulltrúa Óríental við komuna, en auk þess eru farþegar fluttir út á flugvöll og aðstoðaðir við innritun, ef þörf er á. Á hverjum áfangastað hefur Óríental á að skipa fulltrúum, sem veita frekari þjónustu eða eru reiðubúnir til aðstoða, ef eitthvað kemur uppá.
Einkaferðir eru fyrir þá sem vilja sem persónulegasta upplifun af Asíu.
Hér eru í boði ævintýri – örugg ævintýri
Viðskiptaferðir og þjónusta
Óríental og The Thai Icelandic Forum vinna saman að þjónustu við fyrirtæki og stofnanir sem...
Read more
Jóga og heilun
Klausturvist, jógaskólar og fjölbreytt úrval námskeiða og meðferða í heilun er í boði í Asíu...
Read more
Spa og Detox
Það er aldagömul hefð fyrir nuddi og margvíslegum hressingar og fegrunarmeðferðum í Asíu. Í...
Read more
Langdvöl í Asíu
Þeir sem kjósa langdvöl í Asíu hafa um marga kosti að velja hjá Óríental. Langdvalir teljst...
Read more
Róbinson Krúsó ferð
Hvað með að stinga af frá kreppu og köldum vetri á vit fjarlægra stranda? Kyrrlálir og ögn a...
Read more
Veiðiferð í Taílandi
Í Norður Taílandi hafa íslendingar sett á stofn veiðifélag sem nefnist Asia Angling Adventur...
Read more
Golfferðir
Leitun er að betri golfvöllu og þjónustu en í Suðaustur Asíu. Taíland er leiðandi áfangastðu...
Read more
Einkavillur
Óríental er umboðsaðili fyrir fjöld af einkavillum á Balí og í Taílandi. Einkavillur eru nær...
Read more
Góðgjörðir
Flest lönd Suð-Austur Asíu er enn svokölluð þróunarlönd þar sem almenn velferðarkerfi hefur...
Read more
AsíArabi
Arabíuskagi er utan landamæra Óríental en þegar gott tækifæri til landkönnunar býðst e því t...
Read more




