Hópferðir
Persónuleg upplifun undir styrkri stjórn og sérhæfðri leiðsögn
Flestar hópferðir Óríental miðast við litla hópa. Á það sérstaklega við um landkannanir og ævintýraferðir. Því að í stórum er ekki hægt að tryggja, að upplifun hvers ferðalangs verði eins góð og hugsast getur.
Vissulega getur þó engin ferðatilhögun og ekkert skipulag tryggt upplifun ferðamanns. Það er undir hverjum og einum hvernig hann nýtir sér aðbúnað og tilhögun, eða hvað hann greinir og upplifir í umhverfinu. En með því að stilla fjölda ferðafélaga í hófi eru stórauknar líkur á því, að hægt sé að þjónusta betur og veita hverjum einstaklingi þá aðstoð, sem þörf er á.
Við skipulag hópferða er reynt að stilla af dagsplön þannig, að ákveðinn tími sé sameiginlegur og stýrður – yfirleitt fyrri partur dags, en stór hluti dagsins sé frjáls og undir hverjum og einum komið, hvernig hann nýtir hann. Fararstjóri er að sjálfsögðu ávallt tilbúinn að veita ráðleggingar og aðstoða hvern farþega utan skiplags tíma, en það er trú Óríental og stefna, að hver farþegi eigi að vera hvattur til, og eiga kost á, að upplifa framandleika Asíu á eigin vegum, svo reynslan verði sem persónulegust og dýrmætust.
Sérhópar geta ákveðið eigin brottfarir!
Rétt er að vekja athygli á, að allar auglýstar hópferðir Óríental er hægt að framkvæma á öðrum tímum í breyttri eða óbreyttri mynd fyrir sérhópa.
Hafið samband við sala@oriental.is og leitið tilboða og upplýsinga.
Grand Indónesía
Indónesía teygir sig um 5,000 km um miðbaug og innifelur fleiri en 17,000 eyjur og einungis þriðjungur þeirra eru byggðar “órang” einsog við nefnumst á sameiginlegu máli þjóðar sem á fátt anna...
Read more
Grand Kólóníal
Þessi ferð er í raun tvíþætt. Í fyrsta lagi leitast við að skoða Asíu út frá sögu og menjum nýlendutímans og í öðru lagi verðum um leið kappkostað að endurskapa þá elegant stemmningu sem einke...
Read more
Mekong
Móðurfljótið mikla hefur "göngu" sína í Suðaustur-Asíu, í tæplega 5.000 metra hæð í hlíðum Himalæjafjalla á austanverðri Tíbethásléttunni. Á 4200 kílómetra leið sinni rennur fljótið...
Read more
Grand Angkor
Frá því að franski landkönnuðurinn Henri Mouhot rakst á rústir stórkostlegra halla og mustera í frumskógi Kambódíu hefur þessi ævintýraheimur seitt og laðað ferðalanga. Það eru tæplega 150 ár...
Read more
Grand Bútan
Ímyndum okkur konungsríki þar sem hamingja þjóðarinnar er mæld fremur en þjóðarframleiðslan, þar sem menning og hefðir hafa haldist nánast óbreyttar síðan á sjöundu öld umvafið ósnortinni nátt...
Read more
Grand Indókína
Það svæði er kínversk og indversk áhrif mætast í Suð-austur Asíu hefur oft verið nefnt Indókína. Þessi ævintýralega og upplýsandi ferð liggur um þau lönd sem áður nefndust Franska Indókína (Ví...
Read more
Grand Taíland
Þessi ferð er samþjöppuð en samt eins afslöppuð og hægt er að ímynda sér. Þrennt er það sem við hjá Óríental teljum bera hæst í Taílandi; hið geggjaða borgarlíf Bangkok, villt náttúra fjalla n...
Read more




