
Hveitibrauðsdagar
Unaðslegir hveitibrauðsdagar
Við bjóðum ógleymanlega upplifun, klæðskerasniðna fyrir nýgift pör, eða hverja þá aðra, sem fara vilja rómantísku leiðina í lífinu.
Hér gefur að líta nokkra úrvals möguleika, sem hægt er að sérsníða að þörfum viðskiptavina Óríentals. "Pakkaferðir" eiga ekki við alla, þegar fólk ætlar að upplifa eitthvað alveg sérstakt, af sérstöku tilefni. Þess vegna leggjum við ríka áherslu á, að geta boðið bæði ferðir og upplifanir, þar sem pör geta valið saman það, sem mest höfðar til þeirra beggja.
Brúðkaupsferðin á auðvitað að vera sérstök og ógleymanleg upplifun. En það eru engin takmörk fyrir brúðkaupsferðum. Auðvitað eiga hamingjusöm hjón að leyfa sér að hverfa saman á vit ævintýra, tvö ein, hvort sem þau eru nýgift eða eru að halda upp á gullbrúðkaupið – og allt þar á milli.
Hafið samband við okkur og segið okkur hvaða hugmyndir þið hafið. Við búum yfir góðum hugmyndabanka og endalausum möguleikum til að láta rómantíska drauminn rætast, aftur og aftur og aftur.
Hér gefur að líta sýnishorn af ýmsum ferðum sem Óríental býður uppá:
|
|
|
|
Four Season Tented Camp við Gullna þríhyrninginnTvær nætur í lúxustjaldi í ótrúlega spennandi umhverfi. Þið hafið ykkar eigin fíl og langhalabát til taks ef ferðahugurinn grípur. Tjaldbúðahótelið er frægt fyrir einstaka hönnun og exótískar hugmyndaútfærslur. Njótið ástarbrímans undir hljóm frumskógarins í öryggi og munaði. Verð frá 540.000 kr per mann í tvær nætur/þrjá daga, auk tveggja nátta í Chiang Mai og Bangkok |
|
|
Siglt á Mekong með Toum SioveÆvintýraleg sigling í anda nýlendutímans frá Siem Reap (Angkor-musterin), Phnom Penh eða Saigon eftir hinni goðsagnakenndu lífæð Suðaustur Asíu. Vandaður viðarbátur, þjálfuð áhöfn, ævintýralegir áfangastaðir og sagnafróður skipper tryggja ævintýri og munað. Verð frá 367.000 kr per mann f. 4ra daga siglingu PP til Saigon auk 1 nætur í PP og 2 nátta í Saigon* |
Oriental Express lestinTakið upp klæðnað heldra fólks frá því um aldamótin 1900 og ferðist frá Singapúr, um Malasíu eða Taíland í anda Agöthy Christie, með kokkteil og kíki í hönd. Þetta er margverðlaunið og einstök lúxus-lest þar sem skapað er andrúmsloft glæsileika liðinna tíma. Verð frá 487.000 kr per mann frá Singapúr til Bangkok auk gistingar í S´púr & Bangkok. |
|
|
Köfun og útópísk upplifun á Alila hótelunum á BalíGistið 2 nætur í fjallaparadís Ubud þar sem lífið fær annan og fegurri hljóm. Lærið svo köfun útaf ströndum Candidasa í fimm daga (dvalið 4 nætur). Alila hótelin eru fínstillt að gæðum og einstök hvað hönnun og viðmót varðar; og Balí hefur rétta taktinn fyrir rómantík. Verð frá 357.000 kr per mann auk PADI Open Water Diver köfunarnámskeiðs* |
Fjallaklifur og mannfræði í Norður-TaílandiÞrír dagar á fjöllum þar sem upplifuð er einstök náttúrufegurð og framandi en afar heillandi menning hins viðkunnanlega fjallafólks. Chiang Mai, höfuðborg norðursins, skartar fornum musterum, spennandi veitingastöðum og freistandi mörkuðum. Verð frá 334.000 kr per mann auk 1 nætur í Chiang Mai og 2ja nátta í Bangkok* |
|
|
Golf og Wora Bura hóteliðEinstakt hótel byggt í sérstökum Taí-Evró byggingastíl þar sem rómantíkin er allsráðandi í umhverfinu. Strandbærinn Hua Hin er fáguð og falleg umgjörð um munúðarfulla hveitibrauðsdaga. Og fyrir þá, sem verða ofur-rómantískir á golfvellinum, er fjöldi frábærra golfvalla rétt við hótelið. Verð frá 342.000 kr per mann í viku(6 nætur/7 dagar) án vallargjalda og aksturs á golfvelli* |
Siglt um Mekong-fljót í Suður-LaosHér er í boði ævintýri og upplifun af bestu gerð á hinu mjúklynda Mekong-fljóti. Kannið hinar 4000 eyjur í Si Phan Don af þilfarinu á Wat Phou fljótabátnum og lifið í vellystingum í 3 nætur um borð auk rannsóknaferða í landi. Verð frá 368.000 kr per mann auk 2 nátta í Luang Prabang og einni nótt í Singapúr* |
|
|
Singapúr og Angkor á RafflesSagt er að hver sá er gistir einu sinni á Raffles hóteli velji aldrei neitt annað eftir það. 3 nætur í Siem Reap þar sem undur Angkor-musteranna eru upplifuð og 3 nætur í Singapúr þar sem verslunartækifærin eru endalaus. Verð frá 399.000 kr per mann auk aðgangs, aksturs og leiðsagnar um Angkor* |
5 stjörnur - 5 borgir - 10 næturÓtrúlega ríkuleg upplifun fyrir þá sem vilja lúxus og aftur lúxus. Dveljið á bestu hótelunum í fimm mest spennandi borgum og bæjum Suðaustur Asíu: Singapúr, Saigon, Angkor, Luang Prabang og Bangkok. Þetta er háfleyg rómantík. Stæll og klassi alla leið. Verð frá 427.000 kr per mann* |
|
|
Angkor og AmansaraDveljið á Amansara hótelinu og kannið rústir Angkor-musteranna á herjeppa eða dúk-dúk, sem eru til taks allan sólarhringinn. Hér býðst sannarlega einstök og sérhæfð þjónusta og ógleymanleg stemning í fyrrum sumarbústað Sihanouks konungs. Verð frá 416.000 kr per mann fyrir fjórar nætur auk aðgangs, aksturs og leiðsagnar um Angkor* |
Nudd og matreiðslunámskeiðKannið Bangkok í þrjá daga áður en haldið er til norður Taílands, þar sem ykkar býður fjögurra daga matreiðslu- og nuddnám. Hvað er betra veganesti inn í langt hjónaband en að tryggja gæði matar og unað líkamlegrar snertingar. Verð frá 341.000 kr per mann* |
|
|
Rayavadee-hótelið á KrabiEr draumurinn að vera alveg útaf fyrir ykkur, einangruð í lítilli einka-paradís þangað sem einungis fært er á báti? Hér eru í boði þrjár mismunandi strendur, stórkostleg þjónusta, draumkennd náttúra og fjölbreytt afþreying og útivist. Verð frá 437.000 kr per mann í 5 nætur auk 2 nátta í Bangkok* |
Napasai-hótelið á Koh SamuiAfar vandað, kyrrlátt og afvikið hótel með klassa yfirbragði á þeirri eyju Taílands, sem býður uppá allt það, sem ein trópísk eyja getur mögulega búið yfir. Hér liggur unaðurinn í loftinu, slökun, rómantík og skilyrðislaus kærleikur. Verð frá 392.000 kr per mann í viku (6 nætur/7 daga)* |
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir um frekari upplýsingar, verðútreikninga eða óska dagsetningar smellið oriental@oriental.is
Athugið að ferðirnar hér að framan eru einungis brot af þeim kostum sem Óríental býður uppá fyrir brúðkaupsferðir eða rómantískar laumureisur :-)
*Verð miðast við flug frá Íslandi með Icelandair til meginlands Evrópu, áframhaldandi flugs til áfangastaða í Asíu.
Einnig er innifalið allt nauðsynlegt flug innanlands eða innan Asíu sem ferðalýsing tilgreinir.
Allur akstur til og frá flugvöllum er einkaakstur þar sem enskumælandi fararstjóri tekur á móti og eða hjálpar farþegum að innrita sig til flugs.
Einnig er innifalin öll önnur þjónusta sem nefnd er.
Fyrirvari er gerður um að flug, hótel og önnur þjónusta sé til staðar þegar að pöntun kemur og á þeim verðum sem miðað er við. test test





