Sérsniðnar ferðir
Hvað má bjóða þér?
Meira en helmingur farþega Óríental ævintýraferða kjósa að láta okkur klæðskerasauma ferð þeirra. Það er kúnst að semja góða ferðaáætlun, en slík vinna byggir á þekkingu á væntanlegum ferðalöngum, áfangastöðunum og eðli Asíu.
Við hjá Óríental höfum byggt upp gríðarlega þekkingu og reynslu í tímans rás. Af þem sökum erum við hæf til að skipuleggja og greiða leiðir Íslendinga um Asíu, allt frá einstaklingi á leið í viðskiptaferð um Bangkok og Singapúr til ungs fólks á leið í margra mánaða bakpokaferðalag.
Við höfum t.a.m. skipulagt hvern einasta dag í bakpokaferð ungs pars, sem fór um Singapúr, Taíland, Laos, Kambódíu, Víetnam og Balí á 10 vikum á bátum, með lestum, eftir fjallastígum á tveimur jafnfljótum - á landi sem legi. Viðskiptaferðir hafa verið leiddar um Taíland og Kína. Brúðhjón höfum við sent í tjaldbúðir upp til fjalla Taílands. Fjölskylduhópar (afi, amma, foreldrar og börn) hafa þrammað um rústir Angkor undir leiðsögn okkar. Systur hafa kafað með hvalháfum og risaskötum við Similan-eyjur og fjölmargir hafa kynnst framandi fjallafólki Laos og Taílands á okkar vegum. Svona mætti lengi telja og hver upptalning vekur upp hlýjar minningar um undirbúning og skipulag.
Þó svo að vinnan sé að mestu unnin fyrir framan skjáinn á skrifstofu okkar í Bangkok þá byggir þekkingin ávallt á eigin rannsóknarferðum og hver beiðni er hvatning til að leiða gesti Óríental á uppáhalds staði okkar sjálfra, hvort sem þeir séu á miðopnum ferðabæklinga eður ei.
Við teljum það áskorun, að sníða ferð að séróskum eða duttlungum fólks. Þá er gott að geta seilst í reynslusarpinn og dregið upp góð ráð um t.d. fílaferð, vita hvaða hótel skal velja, hvar núðlusúpan er best framborin o.s.frv.
Sendu okkur fyrirspurn með
tölvuskeyti
eða
hafðu samband
.
Athugið, að gott er að tilgreina mögulegan sveigjanleika á dagsetningum og ferðatíma.





