HAFSIGLINGAR:

Víð úthöf, kyrrir flóar og fjarlægar eyjur

Balí, Lombok, Kómódó og Flóres bíða ferðalanga í Indónesíu auk margra annarra eyja. Risaeðlur Kómódó eru forsöguleg skrímsli lystug á villihesta og gelti. Undan ströndum eyjunnar eru fjölbreytileg köfunarsvæði og menning heimamanna ber skrautleg merki kröftugrar og einstakrar náttúru. Ævintýraþyrstir ferðlangar finna ekki lengur flóríska smáfólkið á Flóreseyju en heimamenn koma samt spánskt fyrir sjónir þrátt fyrir að nafn eyjunnar sé portúgalskt. Kelimutu vatnið sem breytir litum frá rauðu, bláu, svörtu eða brúnu (í dag er það sagt sægrænt), ristarottur og framandi þorp Benafólks auk neðansjávarævintýra gera ævintýrin löng og djúp á Flóres. Balí er enn svo mystísk og framandi með göróttan hindúisma, draumkennd augnaráð fjölkunnugra heimamanna. Paradís. Unaðsreitur fyrir líkama og sál. Heilsulindir og jógahof í helgireit heimsins. Næstu nágrannar Balíbúa er Sassakþjóðin sem byggir Lombokeyju. Álíka göldróttir og Balíbúar en fylgja þó sið Múhammeðs. Þó siglingin á milli Balí og Lombok sé stutt skilur Wallace-sundið eyjurnar að og þar liggja mörk ólíkrar náttúru.

Óríental býður íslensku ævintýrafólki uppá einstakar skútusiglingar um Indónesíu, Taíland og Malasíu með Silolona og Ombak Putih bátunum.

Í Taílandsflóa er hoppað frá einni drauma eyju til annarrar í siglingum með Suwan Macha, Silolana og fleiri lúxusfleyjum. Phuketeyja, Koh Samui, Langkawi, Butangeyjaklasinn, Phi Phi og Koh Chuk eru meðal áfangastaða þar sem vellystingar eru ekki minni en ævintýrin.

Í Andamanhafi frá ströndum Búrma niður eftir Taílandi til Malasíu finnast neðansjávarheimar engum öðrum líkir. Risaskötur, hvalháfar, hákarlar og torfur af Nemó litla. Stórkostleg ævintýri hvort heldur fyrir kafara eða “sjóara”.

Í Halongflóa í Norður-Víetnam er siglt um eyjar sem virðast hálf ójarðneskar. Hnarreistar kalksteinseyjur krýndar grænum hatti umluktar bláu hafi. Einsog kínverkst silkimálverk, dulúðugt og framandi.

FLJÓTASIGLINGAR

Frumskógar og fjarlægar byggðir

Ár og fljót hafa mótað og sorfið meginlönd heimsins, borið fram áburð til ræktunnar, stuðlað að viðskiptum og flutt með sér menningu. Mekongfljótið er lífæð Suður-Víetnam, Kambódíu, Laos og Norðaustur-Taílands. Chao Phrayafljótið í Taílandi er og var vagga Síam þar sem Bangkok stendur og hin forna höfuðborg Ayuttaya sat áður. Í Búrma er Irrawaddyfljótið áveita og umferðaræða þeirra frjósamasta lands jafnt hvað landbúnað sem menningu varðar.

Óríental hefur uppá að bjóða fjölbreytt úrval af siglingaleiðum og bátakosti á vötnum og fljótum Suð-Austur Asíu.

Á milli Luang Prabang í Laos og Chiang Kong í Taílandi sigla Luang Sai bátarnir upp og niður Mekong með Pakbeng ármótin sem traustan náttstað.

Á fornum slóðum khmera og champa um Champassak og Pakse í Suður-Laos rennur Vat Phou báturinn um Þúsundeyjaósinn, angkorísk hof og forna velli khmeríska veldisins.

Frá Angkor niður Mekong um Tonle Sap vatn og niður að ósunum við Saigon/Ho Chi Minh borgar renna Toum Tiou bátarnir upp og niður með viðkomu í Phnom Penh höfuðborg Kambódíu og í litlum þorpum á bökkum fljótsins.

Inn í þykkan frumskóg Borneó lullar tréjulla The Irrawaddy Flotilla Company í leit að órangútum og til að njóta náttúrusvæðis sem enn er ósnortið og framandi.

The Irrawaddy Flotilla Company er upprunið í Búrma/Myanmar þar sem siglingarleiðarnar liggja eftir Irrawaddy fljótinu frá Rangoon/Yangoon um Bagan og Mandalay og upp til Homalin við landamæri Indlands eða Bhamo við landamæri Kína.

Frægir landkönnuðir, djarfir landnemar og fróðleiksþyrstir vísindamenn voru útrásarvíkingar á þessum slóðum fyrir rétt um öld. Ævintýraljóminn er engu síðri í dag þar sem ferðalöngum gefst kostur á að upplifa ósnortna náttúru og afskekktar byggðir í munaði vandaðrar skútu við leiðsögn skipstjórnenda sem hafa áratuga reynslu á þessum höfum og fljótum.

Mekhalabáturinn á milli Bangkok og Ayuttaya

Í gegnum aldirnar hefur Kóngafljótið Chao Praya verið lífæð Taílands. Borið með sér næringu...

Read more
 
Vat Phou báturinn í Suður-Laos

Fyrir hundruðum ára klofnaði fornt veldi Laos, sem þá nefndist Lan Xang, upp í þrjú ríkið. S...

Read more
 
Bangkok, Koh Samuieyja og skonnortusigling á Suwan Macha

Fjögurra daga sigling um Taílandsflóa, trópískar eyjur og framandi þjóðgarða. Flogið...

Read more
 
Silolona skútan

Silolona skútan var smíðuð árið 2004 á Súlavesíeyju af skipasmiðum af ætt Konja þar sem hefð...

Read more
 
Ombak Putih skútan í Indónesíu

Þessi myndarlega Bugis-skonnorta hefur siglt um Indónesísk höf síða 1998. Heimahöfnin er Ben...

Read more
 
Compagnie Fluviale du Mekong

Öðrum löndum fremur byggir Kambódía allt sitt á vatni og það er ekki hvaða vatn sem er. Móðu...

Read more
 
Pandaw siglingafélagið

Með sínum fjórum lúxusfleyum heldur Pandaw skipafélagið uppi siglingum um Búrma/Myanmar, ef...

Read more
 
Bangkok, Phuket og skonnortusigling á Suwan Macha

Fjögurra daga sigling um Taílandsflóa, trópískar eyjur og framandi þjóðgar Flogið f...

Read more
 
Bhaya skipin á Halongflóa

Frá Hanoi, höfuðborg Víetnam, er um 3ja klst akstur að höfninni í Halong. Þetta svæði tilhey...

Read more
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.