
Útskriftaferðir
Um víða velli ævintýra Austurlanda
Asía bíður uppá einhverja skemmtilegustu möguleika sem hugsast getur varðandi útskriftaferðir. Þegar prófum og meðfylgjandi stressi lýkur getur fátt verið betra en komast sem lengst frá gamla góða Fróni og stíga inn í exótískan ævintýraheim Austurlanda fjær.
Að flatmaga á hvítri strönd undir blaktandi pálmatré og finna sitt "zen" með Bob Marley í bakgrunni, klífa fjöll og hreinsa út prófkvíðann með léttum átökum og spennandi áföngum, endasendast milli dansklúbba og jazzbúlla í eilífu ævintýri hinna geggjuðu asísku stórborga, hlusta á bænaóm munkanna í kyrrlátu musteri við grænan hrísgrjónaakur, kafa að litríku kóralrifi innan um Nemó og vini hans og uppgötva að námseinkunnir eru ekki það mikilvægasta í heiminum, hlusta á meira á Bob Marley og enda í tunglhátíð á trópískri eyju...
Hér gefur að líta nokkrar hugmyndir að ferðum:
Bangkok, Ampawa, Kaeng Krachan þjóðgarðurinn og Hua Hin
|
Heildarlengd 15 dagar/14 nætur Flestar útskriftarferðir Óríental til Taílands hefjast í Bangkok þar sem á fyrsta kvöldi er leitast við að opna ævintýri borgarinnar í hinni einstöku næturferð Bangkok Express. Eftir tvær nætur í Englaborginni í Austri er ekið suður eftir óseyrum Chao Phraya fljótsins, sem rennur um Bangkok, þar sem stigið er á reiðhjól og rennt um sveitir, bátamarkaði, hrísgrjónaekrur og kyrrlát þorp. Í dagslok er svo ekið spölkorn vestur í stærsta friðland Taílands Kaeng Krachan þar sem gist verður. Daginn eftir er hjólað um garðinn þar sem finnst ótrúlega ósnortin náttúra og villt dýralíf. Strandlíf Hua Hin og ævintýri nágrennis bíður ferðalanga næstu 10 daga áður en haldið er heimleiðis. Verð frá 199.600 kr* |
Bangkok, Chiang Mai, fjallagöngur og Hua Hin
|
Heildarlengd 17 dagar/16 nætur Eftir hið hefðbundna 2ja nátta upphaf í Bangkok er haldið til Chiang Mai með næturlestinni sem er ævintýri útaf fyrir sig. Á öðrum degi í Chiang Mai er haldið til fjalla. Fyrst er gengið að Lahu Outpost þar sem dvalin er nótt í þorpi Lahu ættbálksins. Daginn eftir er gengið, siglt á fljóti, fílum riðið og hjólað á leiðinni í Lisu Lodge þar sem gist er seinni nóttina í afdölum Norður Taílands. Tvær nætur til viðbótar er dvalið í kyrrð Chiang Maí áður en flogið er suður og dvalið í 5 daga í velsæld og afslöppun á ströndum Hua Hin. Að lokum eru svo tvær viðbótarnætur í Bangkok til að fara betur í gegnum innkaupalistana og týnast langar nætur í villtu næturlífi borgarinnar. Verð frá 268.750 kr* |
Bangkok, Khao Sok þjóðgarðurinn og Krabi eða Phuket
|
Heildarlengd 16 dagar/15 nætur Sem fyrr hefst reisan í Bangkok með föstum liðum í tvær nætur pökkuðum af stuði. Síðdegis á þriðja degi er rennt með næturlestinni suður til Surat Thani þaðan sem ekið er snemma morguns til Khao Sok. Næstu tvær nætur og þrjá daga verður siglt í langhalabát um vatnið, rennt á kanóum niður árnar, gist í trjáhúsi, leikið við gibbonapana, þorp veiðimanna heimsótt, gist á flekum og komist í návígi við ótrúlega náttúru og ósnortna menningu. Að þessum ævintýrum loknum verður ekið til Phuket eða Krabi þar sem notið er lystisemda strandlífsins í viku áður en snúið er aftur til Bangkok og gist þar tvær nætur. Verð frá 247.450 kr* |
Bangkok, Luang Prabang og Hua Hin
|
Heildarlengd 16 dagar/15 nætur Ólíkari staði er vart hægt að finna í Suð-Austur Asíu. Bangkok svo ör og ágeng, æsandi og lævís með ævintýralega verslunarmöguleika, tryllt skemmtanalíf og fjölbreytta afþreyingu. Í Laos situr fjallaborgin Luang Prabang á bökkum Mekong, svo blíð og hljóð með hugljúfa kvöldmarkaði, morgunbænir munkanna, fornan stíl í silfri og silki og ólýsanlegan útópískan blæ. Ferðin hefst samkvæmt góðri venju Óríental með 2 nóttum í Bangkok með Bangkok Express o.fl. Síðan er flogið til Luang Prabang þar sem dvalið er 4 daga. Enn ein upplifun bíður svo í strandparadísinni Hua Hin þar 7 dagar eru látnir líða í dekri og sæld. Seinustu tvær næturnar í Asíu er aftur dvalið í Bangkok. Verð frá 274.990 kr* |
Bangkok, Angkor og Hua Hin
|
Heildarlengd 16 dagar/15 nætur Ævintýraleg samsetning á ólíkum og sögufrægum borgum í kröftugri og efnismikilli ferð. Veldi Bangkok er opnað og krufið á 3 dögum með Bangkok Express o.fl. Þaðan er svo flogið til Siem Reap í Kambódíu þar sem farið verður um rústir eins merkilegasta veldis sem ríkt hefur á jörðu. Hofin í Angkor og borgin sem umlukti þau eru líkust ævintýralegri leikmynd og hvert veggbrot, stytta, turn og súlnagöng segja þúsund sögur. Landnemabærinn Siem Reap bætir við ævintýrið með hressilegu næturlífi og skringilegum bæjarbrag. Eftir 4 daga í Kambódíu er komið að lokakafla þessa ævintýris sem eru ljúfir dagar í strandbænum Hua Hin þar sem dvalið verður í viku auk 2ja nátta í Bangkok. Verð frá 276.850 kr* |
Bangkok, Búrma og Hua Hin
|
Heildarlengd 16 dagar/15 nætur Hér er boðið upp á innlit til Búrma, lands sem fæstir sækja heim. Til þjóðar sem á ekkert orð yfir ferðafólk annað en gesti. Á 4 dögum er notið gestrisni þjóðar sem býr yfir meiri sögu, arfleifð, fjölbreytileika og landstærðar en nokkurt annað ríki á meginlandi Suð-Austur Asíu getur státað af. Haldið er til í höfuðborginni Yangon sem státar meðal annars af andblæ nýlendutímans og höfuðhofi landsins, hinu gullna Shwedagon musteri. Einnig farið í ferðir út fyrir bæinn t.d. til Bago sem áður nefndist Pego og var höfuðborg ríkis Monfólks sem ríktu þar fyrir um 500 árum. Þessi framandi ferð hefst að sjálfsögðu með föstum liðum í Bangkok og endar í ljúfheitum á ströndum Hua Hin og aftur síðustu dagarnir í geggjun Bangkok. Verð frá 272.700 kr* |
Jakarta og Bali
|
Heildarlengd 15 dagar/14 nætur Í þessari ferð er haldið rakleiðis til Jövu. Jakarta er höfuðborg Indónesíu og einhver fjörugasta borg Asíu með iðandi mannlíf, óendanlegt næturlíf og sameinar hina ólíku anga eins viðfeðmasta og fjölbreytilegasta ríkis í heimi. Eftir magnaða 3 daga í Jakarta er flogið til Balí þar sem ólíkur andblær ríkir. Hvít strönd Seminyak bíður ferðalanga með sínar frægu sörfaraöldur, næturlíf Kútabæjar handan við hornið og allt það stóra ævintýri og magnaða seið sem Balí er þekkt fyrir. Eftir 8 nætur á ströndinni er dvalið 3 nætur í fjallaþorpinu Úbúd þar sem handverk, reaggeabúllur, hippahreiður og draumkennt umhverfi tryggir heildstæða og ógleymanlega upplifun Indónesíu. Verð frá 254.850 kr* |
Hafið samband við
oriental@oriental.is
ef óskað er nánari upplýsinga um hótel og ítarlegri ferðalýsingar.
Athugið að fjölmargar aðrar útgáfur af útskriftaferðum eru í boði!
*Verð per mann í tvíbýli.
Innifalið: Flug frá Keflavík til Bangkok með Icelandair og Etihad með viðkomu í London eða Frankfurt auk Abu Dhabi. Einnig gisting með morgunmat, allur akstur á milli staða, nefndar sérferðir, allt flug innanlands eða innan Asíu og íslensk leiðsögn.
Ekki innifalið: Flugvallarskattur og gjöld millilandaflugs, einnig öll persónuleg útgjöld og það sem ekki er tilgreint.
Gildistími: Frá 1. otóber 2010 til 31. september 2011
Fyrirvari:
Að farþegafjöldi sé að lágmarki 25 manns.
Að flug, fargjöld, hótel og önnur þjónusta sé fáanleg þegar að bókun kemur.
Verð miðast við gengi gjaldmiðla 30. september 2010.
|
|





