
Kambódía
Sönn ævintýri og magnaðir menningarheimar
Rústir “týndu borgarinnar” Angkor eru helsta aðdráttarafl ferðamanna í Kambódíu. Þær eru fyrir Kambódíu það, sem pýramídarnir eru Egyptum; stórfenglegar minjar um glæsta fortíð og kjarni ferðaþjónustu heimamanna.
Angkor Wat er stærsta mannvirkið, sem reist hefur verið sérstaklega fyrir helgihald í heiminum og eiga rústirnar hvergi sinn líka. Hornsteinn Angkor var lagður við upphaf 9. aldar e. Kr., rétt áður en landnám hófst á Íslandi. Á meðan Íslendingar hírðust veðurbarðir og mishrjáðir á köldu Ísalandi, á ystu mörkum hins byggilega heims, reistu hinir fornu Khmerar þetta gríðarlega og glæsilega mannvirki, sem taldist fullreist á 14. öld e. Kr.
Um þessar mundir er Kambódía að rísa úr öskunni eftir áratuga áþján grimmilegrar harðstjórnar og hræðilegrar borgarastyrjaldar. Hér gefst því einstakt tækifæri til að sjá heila þjóð vakna til lífsins og rétta úr sér á nýjan leik. Efling ferðaþjónustu er stór hluti af endurreisnaráformunum og einmitt af hennar sökum er uppbyggingin í Kambódíu sú hraðasta í Indókína.
Höfuðborg Kambódíu, Phnom Penh, á glæsta sögu að baki og framundan er betri tíð með blóm í haga. Á nýlendutíma Frakka var borgin nefnd perla Indókína og ekki að ástæðulausu, en þar má sjá hlið við hlið glæsilegar byggingar í anda franskrar húsagerðarlistar og dæmigerð híbýli hinna innfæddu. Borgin mátti þola gríðarlegt niðurrif á valdatíma Pol Pots og Rauðu Khmerana, en er nú, eins og svo margt annað í landinu, að lyftast til vegs og virðingar að nýju. Því r um að gera að gerast vottur að þessum stórfenglegu breytingum í landinu, rannsaka hinn forna glæsilega og taka þátt í upprisu og endurnýjunar hins fjöruga mannlífs, sem blómstrar nú meðal vingjarnlegrar þjóðar í fallegu landi.
Blómstrandi mannlíf og aukin viðskipti eru skýrustu táknin um endurreisn höfuðborgarinnar. Enn má þó sjá hinar sorglegu afleiðingar borgarastríðs og grimmilegrar valdníðslu. Hjálparstofnanir hafa þó starfað af miklum þrótti í Kambódíu á síðustu árum og bætt ástandið verulega. Engu að síður má auðveldlega finna í landinu sömu öfgakenndu aðstæður og víðar í þriðja heiminum, þar sem saman standa subbulegt ríkidæmi og ömurleg fátækt.
Í Taílandsflóa, á strönd Kyrrahafs, liggur hinn kyrrláti strandbær Sihanoukville, sem byggist upp með ógnarhraða og virðist á góðri leið með að verða einn vinsælasta ferðamannastöðum Suðaustur-Asíu.
Þeir sem velja að heimsækja Kambódiu um þessar mundir munu upplifa eitthvað einstakt, sem hvergi finnst annars staðar og mun vísast breytast eða líða undir lok innan fárra ára. Við hjá Óríental bjóðum þér að taka þátt í ævintýrinu og stíga nokkur skref inn í veröld á hverfandi hveli.
Konungsríkið Kambódía
Preăh Réachéanachâkr Kâmpŭchea
Konungur:
Norodom Sihamoni
Forsætisráðherra:
Hun Sen
Stjórnarhættir:
Vafasamt lýðræði
Höfuðborg:
Phnom Penh
Opinbert tungumál:
Khmer
Sjálfstæði:
1953 (frá Frökkum)
Þjóðhátíðardagur:
9. nóvember
Íbúafjöldi:
14.241.640 (júlí 2008)
Lífslíkur við fæðingu:
61,69 ár
Þjóðabrot:
Khmerar 90%
Víetnamar 5%
Kínverjar 5%
Trúarbrögð:
Búddismi 95%
Önnur 5%
Stærð lands:
181.040 km2
Ræktað land:
20,44%
Hæsta fjall:
Phnum Aoral (1.810 m)
Landsframleiðsla á mann:
$1.800
Skipting vinnuafls:
Landbúnaður 75%
Iðnaður/þjónusta 25%
Hlutfall fólks undir fátæktarmörkum:
35%
Gjaldmiðill:
Riel (KHR)
Regntími:
Maí til nóvember
Þjóðsöngur Kambódíu
Byggt á upplýsingum úr THE WORLD FACTBOOK CIA - Central Intelligence Agency





