
Grand Angkor
Raunverulegur óraunveruleiki Angkor
Frá því að franski landkönnuðurinn Henri Mouhot rakst á rústir stórkostlegra halla og mustera í frumskógi Kambódíu hefur þessi ævintýraheimur seitt og laðað ferðalanga. Það eru tæplega 150 ár síðan hinn vestræni heimur hafði fregnir af menjum um ríki sem skapaði óviðjafnanlegar byggingar og listaverk og byggði borg stærri en París og Róm. Borg sem var að flatarmáli svipuð því sem Los Angeles er í dag. Þetta er Angkor. Forn höfuðborg veldi Khmera sem náði yfir stóran hluta meginlands Suð-Austur Asíu.
Við hjá Óríental höfum verið bergnumin (í orðsins fyllstu merkingu) af Angkor frá því við hófum starfsemi í Kambódíu. Hvernig er annað hægt? Töffaralegar bíómyndir einsog Tomb Raider með Angelina Jolie eða draumkenndar ljósmyndir af andlitum búdda og fyrrum konunga Khmera gefa ævintýralegar hugmyndir um þennan stað og fæstir trúa því að þetta sé í raun svona. En málið er að þetta er rétt mynd(-Angelina). Angkor er raunverulegur draumur.
Í þessari ferð verður gefinn kostur á að upplifa rústir Angkor og kynnast fornri sögu Khmera á þægilegan hátt því dvalið er 5 daga í Siem Reap sem er bær í jaðri Angkor. Dvalið verður í hægindum á Viktoría hótelinu þar sem andblær nýlendutímans er skemmtilega endurvakinn.
Það er svo margt merkilegt að sjá og því svo mikið sem þarf að melta að ekki er ráðlegt að fara hratt yfir. Hálfsdagsferðir – annað hvort að morgni eða síðdegi auk kynningarfunda yfir hanastéli eða morgunkaffi er leiðin til að innbyrða miklar upplýsingar og stórkostlegar upplifanir.
En þrátt fyrir að þetta sé mikil landkönnun og ævintýrareisa er þetta um leið mikil lúxusferð með öllum tiltækum hægindum.
Ferðin hefst í Bangkok í Taílandi og henni lýkur með ferð til höfuðborgar Kambódíu, Phnom Penh þar sem síðari saga landsins er skoðuð.
Rannsóknarvinna við undirbúning þessarar ferðar hefur staðið yfir lengi og hvergi hefur verið til sparað. Ferðalangar fá afhent ítarlega upplýsinga- og ferðagögn á íslensku sem ekki hefur áður verið gefið út á Íslandi.
Höfuðstaðir Angkor sem verða rannsakaðir:
Angkor Wat – meginhof veldisins. Ein sérstæðasta og myndrænasta bygging í heimi.
Angkor Thom – borgarmiðjan og hýbýli konunganna með Bayonhofið, Baphoun, fílaveröndina o.fl.
Ta Prom – hinar dramatísku frumskógarústir rammaðar inn af vafningsvið og trjárótum.
Bantey Srei – hið fíngerða kvennavirki þar sem höggmyndir og byggingarlist Angkor náði hæstu hæðum. - auk fjölda annarra hofa og hallarrústa.
ÁFANGAR: Bangkok 2 dagar, Siem Reap og Angkor í Kambódíu 5 dagar, Phnom Penh 2 dagar.
Hápunktar: Angkor Wat og Bayon. Loftbelgsflug yfir Angkor Thom. Fílareið uppá Phnom Pakheng. Skringileikar Phnom Penh og ævintýri Bankgok.
Helstu upplýsingar
- Nafn:
- Grand Angkor
- Lengd:
- 10 dagar/9 nætur
- Tegund:
- Landkönnun
- Brottför:
- Ódagsett
- Verð:
- Kr
- Skoðið líka:
- Langdvöl í Asíu Róbinson Krúsó ferð





