Tour d´Angkor

Hjólað frá Taílandi til Angkor og Phnom Penh í Kambódíu…og áfram til Saigon ef knapar vilja

Sannkölluð landkönnun með átökum og ævintýrum við hæfi og getu allra fullfrískra. Hjólreiðaferðin er alls um 550 km löng. Í upphafi ferðar gefst kostur á að kynnast leyndardómum og spennu Bangkokborgar. Þar verður gleði- og nautnahlið borgarinnar opnuð ferðalöngum með Bangkok Express næturferðinni þar sem ljúffengur matur, göróttir drykkir, framandi snarl, leyndardómsfullar hliðargötur og sitthvað sérkennilegt í daglegu lífi bangkokkara er rannsakað. Bangkok er ekki síðri í björtu og með heimsókn í gömlu konungshöllin Póhofið er glæstur tími núverandi konungsdóms kynnt ferðalöngum.

Frá Taílandi er haldið til Kambódíu þar sem hinar glæsilegu rústir Angkor bíða hjólreiðagarpa. Hjólað í gegnum afskekkt sveitaþorp og grösugar sveitir. Fyrst er farið frá landamærunum til Pailinbæjar þar sem andi Rauðu Khmeranna ætlar seint að síga af þjóðinni og áfram til Battambang þaðan sem siglt er eftir Tonle Sap fljótinu til Siem Reap.

„Við Ongcor eru rústir svo stórkostlegar að við fyrstu sýni fyllist maður lotningarfullri aðdáun, en kemst ekki hjá því að velta fyrir sér hvað varð um þann mikilfenglega kynstofn, svo þróaðan, upplýstan og framsæknin að geta reist þessar risabyggingar...“ Þetta voru orð Henri Mouhot sem enduruppgötvaði Angkor fyrir rétt rúmum 140 árum og segja þau mikið bæði um Angkor og Kambódíu.

Siem Reap bærinn býr ekki síður yfir ævintýrum en Angkor. Þarna finnast næturgaldrar inná smart börum og diskótekum, framandi markaðir og fleira í þessari sérstöku súpu af sveitalífi og túrisma.

Eftir 4 daga við Angkor er siglt eftir Tonle Sap vatni sem er fisksælasta vatn í heimi áleiðist til höfuðborgar Kambódíu Phnom Penh. Á leiðinni eru fljótandi fiskiþorp heimsótt og fjölbreytt dýralíf skoðað. Phnom Penh er skringileg og spennandi. Sagan sem skoðuð er í höfuðborginni er mun yngri en saga Angkor. Höll núverandi konungsfjölskyldu er heimsótt þar sem Silfurpagóðuna er að finna. Enn yngri er saga Rauðu Khmeranna sem hrökkluðust frá völdum fyrir rétt um 30 árum eftir stuttan en hræðilegan valdatíma. Það er ekki hægt að fara í gegnum Kambódíu án þess að gera sér grein fyrir þessum atburðum og í S21 fangabúðunum er þess gætt að ekkert gleymist.

Fyrri legg ferðarinnar lýkur hér eftir tvo daga en þeir sem vilja geta haldið áfram og hjólað til Saigon í Víetnam. Það er enn eitt ævintýrið.

ÁFANGAR: Bangkok 2 dagar, Sao Dao 1 dagur, Pailin 1 dagur, Battambang 1 dagur, Angkor/Siem Reap 4 dagar, Phnom Penh 2 dagar
Viðbót: Kaoh Kok 1 dagur, Saigon 2 dagar

Hápunktar: Hin villta trylla Bangkok, Angkormusterin, skringileg og sérstök Siem Reap, fljótandi fiskiþorpin á Tonle Sap, S21 safnið, vígvellirnir og konungshöllin í Phnom Penh (Cu Chi göngin, Notre Dame dómkirkjan og hernaðarhöllina í Saigon).

Helstu upplýsingar
Nafn:
Tour d'Angkor
Lengd:
13 dagar/12 nætur
Tegund:
Hjóla- og ævintýraferð
Verð:
Kr
Skoðið líka:
Grand Kólóníal Grand Taíland Mekong
Sendu mér leiðarlýsingu!
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.