Phnom Penh

Gamla perla Indókína

Höfuðborg Kambódíu, Phnom Penh á glæsta sögu að baki og blómstrandi tíð framundan, sem er um það bil að springa út. Á nýlendutíma frakka var borgin nefnd perla Indókína. Borgin mátti þola gríðarlegt niðurrif á valdatíma Pol Pot og Rauðu Khmerana, en er nú, einsog svo margt annað hér, að lyftast til vegs og virðingar að nýju. Blómstrandi mannlíf og aukin viðskipti eru þar skýrustu táknin, en ennþá eru samt sýnilegir hinir sorglegu þættir sem borgarastríð skilur eftir sig, þótt margar hjálparstofnanir hafi í frammi mikið starf til að bæta þar úr. Hér blasa því við öfgarnir; subbulegt ríkidæmi og ömurleg fátækt. Phnom Penh er því forvitnilegur áfangastaður að rannsaka vegna hins forna glæsileika en ekki síður vegna uppbyggingar mannlífsins eftir erfiða tíma.

Phnom Penh hefur samhljóm með Siem Reap á margan hátt. Á einhvern hátt misþroska borg. Sums staðar kosmopólítisk og annars staðar eins og sveitaþorp. Óöldin er gekk yfir þjóðina síðustu áratugi hefur tekið sinn toll af borginni, sem þó er nú, einsog áður sagði, í mikilli endurreisn.

Miðja Phnom Penh er óumdeilanlega við Sisowat Quay götuna niður viðTonle Sap ána þar sem pálmatré lúta yfir aðalumferðaræð landsins. Barir, internetstaðir, gistiheimili og veitingastaðir af öllum sortum standa þétt við götuna og snúa að ánni. Frá Sisowat Quay og Amanjaya hótelinu er hægt að fara fótgangandi á flesta áhugaverða staði og finna nánast alla nauðsynlega þjónustu. Silfurpagódan og Konungshöllin eru spölkorn frá auk þjóðminjasafnsins. Wat Phnom hofið, sem borgin dregur nafn sitt af, situr á lítilli hæð ofarlega við ána. Tuol Sleng/S21 safnið og Vígvellir/The Killing Fields eru aftur á móti fjær.

Það eru þó ekki söfnin og hofin sem merkilegast er að sjá í þegar dvalið er í Phnom Penh, heldur íbúarnir, hvort heldur skuggalegur útlaginn, bjarteygður björgunarsveitarmaðurinn, bugaður rauður Khmeri eða atorkusamur almennur þjóðfélagsþegn. Í Kambódíu gefst einstakt tækifæri til að skoða menjar óhugnanlegra atburða, sem áttu sér stað fyrir augum alls heimsins fyrir ekki svo ýkja löngu, atburða sem skildu eftir sig djúp ör á þjóð og landi. Þetta er þjóð á krossgötum og það eru spennandi og bjartir tímar framundan. Það er ánægjulegt að upplifa áhugasamt og eljufullt blikið í augum þessa fólks. Og ekki er síður afar athyglisvert fyrir okkur íslendinga að sjá hvernig Asíubúinn vinnur úr sinni erfiðu fortíð – á svo ólíkan hátt en okkur er kennt.

Kvöldið er sá tími sem borgin hvað mest lifandi og opin. Þá er best að reyna að átta sig á hvað er á seyði í raun og veru í Kambódíu. Á hamingjutíma/happy hour á vel völdum bar, innan um hina skraulegu mannlífsflóru, sem þrífst vel í þessu ævintýralega landi, eru magnaðar sögur sagðar yfir glasi af Sra Special eða núðluskál. Nóttin Phnom Penh á þúsund sögur að segja þeim sem vilja hlusta.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.