Siem Reap og Angkor

Skrautlegur bær og ævintýralegar rústir

Siem Reap er skrautlegur staður sem minnir helst á bæ í kúrekamynd, bæ landnema, útlaga og gullgrafara. En skrautið felst ekki í tilgerð og smartheitum – þetta er lágreistur bær, ögn fátæklegur en þó með merki gamals glæsileika og spennandi framtíðar. Það eru rétt rúm tíu ár síðan Kambódía opnaðist aftur fyrir umheiminum og síðan hefur ferðamannastraumur til Siem Reap aukist úr nokkrum þúsundum ferðalanga á ári í nokkur hundruð þúsundir. Við forugar moldargöturnar liggja ný og glæsileg hótel, á næsta horni er þó enn markaður með lifandi búpeningi; það lullar asnakerra eða rikksjo áfram undir óþolinmóðu flauti hummerjeppans, hópur japanskra túrista tiplar um og horfir í forundran á evrópskan bakpokalýðinn.

Khmerarnir eru einlæg og elskuleg þjóð, en eðlilega lúin og bæld eftir þrjátíu ára skálmöld. En þjóðin er sem betur fer að endurheimta stolt sitt, hægt og örugglega. Það örlar kannski enn á svolitlu óöryggi í framkomu við útlendinga, en glæsileg fortíð þeirra er að sjálfsögðu ekkert til að hafa minnimáttarkennd yfir . Brosið er fallegt og viljinn til að kynnast gestum landsins og aðstoða þá í hvívetna er einlægur og laus við allan fölskva.

Í Siem Reap eru nú nokkur athyglisverðustu hótelin í Indókína s.s. Hotel de la Paix, FCC (Foreign Correspondance Club) og Amansara, sem er í fyrrum sumarbústað Sihanouks konungs þar sem hann sötraði kokteila með Jackie Kennedy og fleirum. Ekki má gleyma hinu fágaða og svolítið uppskrúfaða Raffles Grand hotel d´Angkor, þar sem hetjur millistríðsáranna dvöldu þegar þær komu til að spígspora um rústir Angkor, svo sem Charlie Chaplin og fleiri.

Við Bargötu er augljóslega að finna marga skemmtilega bari, auk veitingastaða, lítilla gistiheimila og nuddstofa með mis-virðulegt orðspor. Skammt frá er gamli markaðurinn; ekta asískur götubasar með látum og fjöri, nýlenduvörum í bland við tískuvarning og minjagripi, falsað eða ekta, löglegt eða þjófstolið. Þeir gerast ekki skemmtilegri en þetta.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.