Siglingar í Kambódíu

Öðrum löndum fremur byggir Kambódía allt sitt á vatni og það er ekki hvaða vatn sem er. Móðurfljótið mikla Mekong og hið stórkostlega náttúruundur Tonle Sap vatnið. Tonle Sap vatnið er einsog hjarta Mekong. Á regntímanum (frá maí til október) rís yfirborð Mekong-fljóts mikið – allt að átta metrum - og við það flæðir inn á uppþurrt Tonle Sap vatnasvæðið um 100 km. langt náttúrulegt síki. Við það vex vatnið úr um 3000 km2 í um 7500 km2. Síðar, þegar árlegir þurrkatímar hefjast, skilar vatnið sér að nokkru leyti aftur til fljótsins, þegar yfirboð þess verður lægra en yfirborð Tonle Sap. Þessir miklu straumar og breytingar skapa kjöraðstæður fjölbreytts lífríkis og mikillar veiði. Tonle Sap er talið stærsta ferskvatnsveiðisvæði í heiminum og áætlað er að um 80% af próteinneyslu kambódíubúa sé upprunið í vatninu.

Óríental býður íslensku ævintýrafólki uppá einstakar siglingar á Mekongfljóti og Tonle Sap vatningu um Kambódíu með Toum Tiou og Orient Pandaw bátunum.

Compagnie Fluviale du Mekong

Öðrum löndum fremur byggir Kambódía allt sitt á vatni og það er ekki hvaða vatn sem er. Móðu...

Read more
 
Pandaw siglingafélagið

Með sínum fjórum lúxusfleyum heldur Pandaw skipafélagið uppi siglingum um Búrma/Myanmar, ef...

Read more
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.