
Compagnie Fluviale du Mekong
Öðrum löndum fremur byggir Kambódía allt sitt á vatni og það er ekki hvaða vatn sem er. Móðurfljótið mikla Mekong og hið stórkostlega náttúruundur Tonle Sap vatnið. Angkor, veldi khmera, hefði sjálfsagt aldrei orðið til ef Mekong hafi ekki borið fram áburð og vatn fyrir þeirr flókna og víðfema áveitukerfi sem stóð fyrir hrísgrjónarækt sem dugði Angkor Thom borginni og nágrannabyggð. Tonle Sap vatnið er einsog hjarta Mekong. Á regntímanum (frá maí til október) rís yfirborð Mekong-fljóts mikið – allt að átta metrum - og við það flæðir inn á uppþurrt Tonle Sap vatnasvæðið um 100 km. langt náttúrulegt síki. Við það vex vatnið úr um 3000 km2 í um 7500 km2. Síðar, þegar árlegir þurrkatímar hefjast, skilar vatnið sér að nokkru leyti aftur til fljótsins, þegar yfirboð þess verður lægra en yfirborð Tonle Sap. Þessir miklu straumar og breytingar skapa kjöraðstæður fjölbreytts lífríkis og mikillar veiði. Tonle Sap er talið stærsta ferskvatnsveiðisvæði í heiminum og áætlað er að um 80% af próteinneyslu kambódíubúa sé upprunið í vatninu.
Fyrirliðar Compagnie Fluviale du Mekong segja; “Sleppið því að hugsa um ferðir á Níle eða Ganges, hið dularfulla Mekongfljót – móðurfljótið mikla, mun heill og seiða hvern þann sem siglir með okkur”.
Marga áratugi var Mekong óaðgengileg þar sem hún rann í gegnum Laos, Kambódíu og Víetnam því þessi lönd voru lokuð ferðamönnum og víða á bökkum fljótsins ríkti skálmöld og ógnvartími en nú er leiðin greið. Leið sem dregur ferðamenn á ævintýralegar og framandi slóðir.
Frá ósum Mekongu við Saigon/Ho Chi Minh borgar liggur leiðinni upp til Kambódíu þar sem höfuðborgin Phnom Penh er höfuð áfangastaður flestra ferða. Stundum liggur leiðin áfram eftir Tonle Sap til Siem Reap sem er hafnarbærinn við Angkor rústirnar.





