Peningar
Gjaldmiðill Laos kallast gibb, ritað "kip" á ensku. Taílensk bött og bandaríkjadollarar eru einnig í notkun í stærri bæjum og á ferðamannastöðum.

Hægt er að nota kreditkort víða í Vientiane og Luang Prabang í stærri verslunum, veitingastöðum og hótelum. Í Vientiane finnast nokkrir hraðbankar en einungis einn slíkur í Luang Prabang og tekur hann einungis Mastercard. Bankar afgreiða reiðufé út á kreditkort en krefjast afrits af vegabréfi við afgreiðslu. Einnig hafa ýmsar ferðaskrifstofur afgreitt reiðufé út á kreditkort í Luang Prabang. Álagning á reiðufjárgreiðslur er frá 1,5 til 6%.

Sími og internet
Hægt er að nota jarðsíma víðast hvar í Laos og farsímar virka vel í stærri bæjum og borgum. Hægt er að kaupa frelsisnúmer víða og nota á meðan dvalið er í landinu. Internetið er að byggjast hratt upp í Laos. Í Vientiane og Luang Prabang eru víða net-kaffihús sem bjóða upp á höfuðsett og myndavélar, svo hægt er að hringja af Skype eða öðrum viðlíka þjónustuaðilum.

Vegabréf og áritanir
Vegabréf þurfa að gilda 6 mánuðum umfram áætlaða brottför frá Laos. Íslendingar þurfa vegabréfsáritun, sem er gefin út við komu til Luang Prabang og Vientiane og kostar 30 dollara. Greiða þarf í bandaríkjadollurum eða gibbum. Einnig þarf að leggja til passamynd. Áritunin gildir í 15 daga, en hægt er að framlengja um 14 daga til viðbótar. Refsigjald – 3 dollarar ár dag - er fyrir að dvelja lengur en áritun gildir.

Framangreindar upplýsingar geta breyst skyndilega og eru því settar fram með fyrirvara.

Það er á ábyrgð ferðamannsins, ekki Óríental, að standa rétt og vel að vegabréfs-, áritunar- og leyfismálum.

Upplýsingar um vegabréfsáritanir má fá á heimasíðu Utanríkisráðuneytisins

Hér er hægt að sjá þau form sem fylla þarf út við komu til Laos.
Arrival and departure card
Passenger declaration
Application form for arrival visa

Rafmagn
Laosbúar notast við 220 volta straum, eins og á Íslandi. Sumstaðar til sveita getur styrkur straums sveiflast og þykir það ekki fara vel með raftæki. Í stærri bæjum er straumur nokkuð jafn og öruggur.

Flestar klær eru öðruvísi en heima á Íslandi. Styttra er á milli póla og eru þeir flatir. Hægt er að kaupa millistykki víða, t.d. í flugvélum. Flest hótel bjóða einnig uppá straumbreyta og millistykki til láns.

Öryggi
Það er óhætt að segja, að Luang Prabang og Vientiane séu örugg svæði, en að sjálfsögðu þarf að fara varlega. Það sama gildir um Mekong frá Taílandi til Luang Prabang og áfram niður til Vientiane.

Utan alfaraleiða þarf að fara mjög varlega því víða leynast jarðsprengjur og ósprungnar sprengjur frá Indókína- og Víetnam-stríðunum.

Ákveðin svæði í Laos eru óörugg, því enn gætir mótspyrnu Hmong skæruliða við kommúnistastjórnina. Óríental stendur aldrei fyrir ferðum á, eða nærri, þeim svæðum.

Tilefnislausar árásir, nauðganir og ofbeldisglæpir gagnvart ferðafólki eru afar fátíðar. Truflanir og óþægindi frá hendi ókunnugra, s.s. róna og götulýðs, eru algengari í miðbæ Reykjavíkur en í Vientiane eða Luang Prabang.

Fylgið ávallt einföldum ráðum eins og t.d.

  • Að hunsa sjálfskipaða leiðbeinendur og ráðgjafa sem spretta víða upp á ferðamannastöðum.
  • Konur eiga aldrei að segjast vera einar á ferð. Ef svo lítur út skal því borið við að verið sé að bíða eftir eiginmanni eða karlkyns félaga.
  • Að bera ekki dýra skartgripi.
  • Að geyma verðmæti í öryggishólfum hótela (nær öll hótel Óríental eru
    þannig búin).
  • Að vera ekki á ferð á fáförnum stöðum seint um kvöld.
  • Að forðast strætishunda.

Flugvallarskattur
Það er 10 dollara brottfararskattur á millilandaflug og er það gjald ekki innifalið í flugmiðanum. Það verður því að greiða þann skatt við brottför. Einnig er 5000 gibba brottfararskattur á innanlandsflugi og skal greiðast í laótískum gjaldmiðli – gibb.

Tími og ártal
Sami tími gildir allt árið, 7 klst á undan Íslandi. Öllu jafnan notast Laóar við hið vestræna ártal, en þó bregður fyrir hinu búddíska. Árið 2007 er 2550 hjá búddistum og munar því 543 árum.

Þjórfé
Asískt þjóðfélag byggist mikið á stéttskiptingu og um leið ákveðnu yfirlæti. Þetta eru þjóðfélög þar sem hefð er fyrir háum herrum og lágum þjónum. Þjónusta er yfirhöfuð meiri og betri en við þekkjum í Evrópu. Þessu fylgja ýmsir siðir. Sá ríkari, eða í sumum tilfellum einfaldlega sá eldri, borgar yfirleitt alla veitingahúsareikninga.

Það kostar fé að vera virtur í Asíu. Það þykir skrítinn siður að láta konu borga fyrir sig eða þá að skipta upp reikningum á veitingastöðum. Reglur um þjórfé eru ekki eins stífar í Laos og víða annars staðar, þetta er þó að breytast og á flestum ferðamannastöðum er gert ráð fyrir að skilja eftir ca. 5-10% þjórfé.

Athugið að á flestum dýrari veitingastöðum og hótelbörum og veitingastöðum er rukkað svokallað "plús plús" gjald, þar sem fyrst er lagt ofan á 10% þjónustugjald og síðan 7% söluskattur til viðbótar þar af.

Það er til siðs að greiða fararstjórum og bílstjórum þjórfé.

Flug og flugþreyta

Flugþreyta getur sótt sterkt á fólk eftir langt flug og miklar breytingar á tíma og
yfirferð tímabelta.

Hér koma nokkur góð ráð og skýringar.

Flugið:

  • Spáið í hvernig tíminn er best nýttur til svefns í fluginu, m.v. á hvaða tíma þið lendið - þ.a.s. reynið strax að stilla ykkur inná tímabelti áfangastaðar.
  • Svefntöflur, eyrnatappar, svefnkragar, rakakrem, svefnleppar, vatn og vaselín/varasalvi er gott að hafa við hendina. Rakakremið og vaselínið gleymist oft, en þetta tvennt er til að verjast sérlega þurru lofti flugvéla. Eftir 10-11 klst. þurrki geta varir orðið mjög þurrar og slímhúð í nefi orðið viðkvæm. Söngvarar, sem þurfa sérstaklega að gæta að hálsi og raddböndum, fljúga sumir hverjir með rykgrímu til að binda rakann í útöndunni og viðhalda þannig betra rakastigi í koki og nösum.
  • Svo er það náttúrulega þetta týpíska með að hreyfa sig og drekka nóg af vatni.
  • Einhvers staðar stendur, að maður eigi ekki að drekka áfengi í löngu flugi, en margur segir það vera svo hentugt, til að drepa tímann, að það sé þess virði.

Eftir lendingu:

  • Kenningar Bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA eru á þann veg, að fyrir hvert tímabelti þurfi einn dag til aðlögunar. Skýring spíritista er sú, að sálin sé svo laus úr líkamanum, að hún haldi ekki í við þotuhraðann og því taki það hana lengri tíma að ná á áfangastað.
  • Sagt er að verra sé að fljúga austur en vestur.
  • Asískt húsráð við flugþreytu er að borða nóg af engifer. Það er öllu jafnan ekki vandamál að finna slíkt hráefni í austurlenskum mat.
  • Vestrænt húsráð er Melatonin. Athugið að Singapore Airlines selja það í flug-fríhöfn sinni.
  • En fyrst og fremst er þetta spurning um að stilla sig inn á nýjan tíma. Að vera sem mest utandyra við þá birtu sem ríkir og beita sig þeim aga sem þarf. Þar geta svefnpillur nýst vel.
  • Athugið að flest lyf fást án lyfseðla í apótekum í Asíu.
  • Haldið áfram að drekka nóg af vatni.
  • Þau einkenni, sem þið getið átt von á að upplifa, eru þreytuköst, sjóriða, meltingartruflanir, sljóleiki og sálarleysi.
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.