Singapúr

Evrópsk-asískur kokteill

Singapúr er sérkennilegur kokteill kínverskrar, evrópskrar, indverskrar og malasískrar menningar. Borgríki þetta á sér hvorki fyrirmynd né eftirmynd. Stjórnsýsluform þess byggist á hugsjónum og framtíðarsýn eins manns; Lee Kuan Yew og stöðu borgarinnar sem verslunar- og fríhöfn á stjórnartíð breskra nýlenduherra.

Í Singapúr er snyrtimennska í fyrirrúmi og reglusemi mikil, þó undir niðri kraumi hinn asíski og exótíski glundroði. Slíkt opinberast í magnaðri matargerð, villtum skemmtistöðum og með ýmsum öðrum hætti. Singapúr er, ásamt Hong Kong, vagga hinnar kínversku matargerðar, eins og við þekkjum hana á Vesturlöndum. Þeir sem vilja borða góðan mat á glæsilegum veitingastöðum og njóta lífsins á úrvals skemmtistöðum finna fáa staði hentugri en einmitt Singapúr.

Singapúrar eru stoltir af góðri sambúð ólíkra menningar- og þjóðabrota, ólíkt því sem gerist víða annars staðar. Bænasöngur múslima berst yfir hindúamusterin og kirkjuklukkurnar hljóma í bland við búddískan trumbuslátt. Kínahverfið, Litla Indía og hverfi Malæja eru svo svipsterk og skýr, að menn upplifa eins og þeir séu staddir í móðurlöndunum sjálfum. Skammt undan er svo umhverfi og stemning, sem Evrópubúar finna sig eins kunnuga og heima fyrir.

Singapúr er staður þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi - þar sem allir geta fundið sig heima eða að heiman, eftir því hvaða væntingar menn bera í brjósti. Singapúr er einfaldlega staður sem hvergi er annars staðar að finna á jarðarkringlunni.

Lýðveldið Singapúr

Republik Singapura

"Landsfaðir":
Lee Khuan Yew

Forsætisráðherra:
Lee Hsien Loong (sonurinn)

Stjórnarhættir:
Sérkennilegt lýðræði

Höfuðborg:
Singapúr

Opinber tungumál:
Í reynd: Enska/Singlíska (enskuafbrigði)
Mandarín 35%
Enska 23%
Mælíska 14,1%
Hokkíenska 11,4%
Kantónska 5,7%
Teo Chew 4,9%
Tamíl 3,2%
Ýmis kínversk mál 1,8%
Önnur mál 0,9%

Sjálfstæði:
1965 (frá Malasíu)

Þjóðhátíðardagur:
9. ágúst

Íbúafjöldi:
4.608.167 (júlí 2008)

Lífslíkur við fæðingu:
81,89 ár

Þjóðabrot:
Kínverjar 76,8%
Malæjar 13,9%
Indverjar 7,9%
Aðrir 1,4%

Trúarbrögð:
Búddismi 42,5%
Íslam 14,9
Taóismi 8,5%
Hindúismi 4%
Rómversk-kaþólska 4,8%
Aðrar kirkjudeildir 9,8%
Önnur 0,9%

Stærð lands:
692,7 km2

Ræktað land:
1,47%

Hæsta fjall:
Bukit Timah (166 m.y.s.)

Landsframleiðsla á mann:
$49.700

Skipting vinnuafls:
Iðnaður/byggingar 26%
Flutningur 7%
Viðskipti og þjónusta 42%
Annað 25%

Gjaldmiðill:
Singapúr dollari (SGD)

Regntími:
Júní til september, desember til mars.

Þjóðsöngur Singapúr

Byggt á upplýsingum úr THE WORLD FACTBOOK CIA - Central Intelligence Agency

Image courtesy of the Singapore Tourism Board
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.