
Formsatriði við komu og brottför
Fylla þarf út bæði komu- og tollaeyðublöð, áður en farið um vegabréfs- og tollskoðun í Singapúr.
Vegabréf og áritanir
Vegabréf þurfa að gilda 6 mánuðum umfram áætlaða brottför frá Singapúr. Íslendingar þurfa ekki að sækja um vegabréfsáritun, ef einungis er dvalið í 30 daga eða skemur í landinu.
Hér gefur að líta sýnishorn af umsóknareyðublaði fyrir
vegabréfsáritun
.
Tollvarningur
Tollreglur Singapúr heimila ferðamönnum, eldri en 18 ára, að koma 1 ltr. af áfengi inn í landið; 200 sígarettur, 50 vindla eða 100 grömm af tóbaki. Athugið að bannað er að koma með eftirfarandi muni inn í landið:
- a. Sígarettukveikjara eða leikföng sem hafa útlitslögun byssu eða annarra skotvopna.
- b. Vímuefni eins og heróín, kannabisefni o.fl. Athugið að ef slík efni umfram 2 grömm að þyngd finnast á farþega gilda ströng hegningar-og dauðarefsilög í Singapúr.
- c. Ólögleg afrit af t.d. DVD, CD, myndböndum, tölvuleikjum, tölvuforritum o.fl.
- Þegar landið er yfirgefið verður að tilkynna hluti á borð við skotfæri, gull og ýmis lyf til tollvarða á flugvellinum.
Greiða þarf 4% innflutningsskatt af vörum, sem fluttar eru inn í landið.
Boð og bönn
Hver kannast ekki við lagið um það sem er bannað eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson, fyrsta vers textans hljómar svona:
,,Það má ekki pissa bakvið hurð
og ekki henda grjóti oní skurð
ekki fara í bæinn
og kaupa popp og tyggjó
og ekki nota skrúfjárn fyrir sleikjó“
Singapúrborg gefur sig út fyrir að vera hreinasta borg í heimi og til þess að viðhalda hreinlætistóninum hafa stjórnvöld brugðið á það ráð, að banna ýmsa huti. Það má t.d. ekki hrækja úti á gangstéttum eða götum. Það má ekki reykja nema á sérmerktum stöðum og úti á götu. Það er stranglega bannað að fleygja sígarettustubbum eða rusli úti á götu. Ef fólk verður uppvíst af að brjóta reykingarreglur landsins er því gert skylt að greiða 1,000 SGD. Það er stranglega BANNAÐ að henda tyggjógúmmíi á götur borgarinnar. Stranglega BANNAÐ.
Peningar, kreditkort og ferðatékkar
Gjaldmiðill í Singapúr er singapúrskur dalur (SGD), ritað "Singapore dollar" á ensku. Seðlarnir eru gefnir út í 2 SGD, 5 SGD, 10 SGD, 20 SGD, 50 SDG, 100 SGD, 500 SGD, 1,000 SGD og 10,000 SGD. Í öllum helstu verslunarklösum Singapúr er hægt að nota US dollara, ástralska dollara, kínverskt júan og bresk pund. Auðvelt er að nota kreditkort og ferðatékka og hraðbankar eru víða aðgengilegir.
Læknisþjónusta
Fagleg læknisaðstaða er til fyrirmyndar í Singapúr og auðvelt að vitja alþjóðlegra spítala sem búa yfir góðri læknisþjónustu, en vert er að minna á, að slík heimsókn getur verið kostnaðarsöm.
Það er skynsamlegt að fá sér haldgóða ferða-og sjúkratryggingu áður en haldið er á vit asískra ævintýra.
Drykkjarvatn
Kranavatnið í Singapúr er vel drykkjarhæft, en fyrir þá sem vilja ekki taka neinar óþarfa áhættur viljum við benda á, að hægt er að kaupa innsiglað vatn í flösku í öllum matarverslunum og smásölustöðum, eins og t.d. Seven eleven.
Rafmagn
í Singapúr er notaður 220 – 240 volta straumur og þriggja pinna kló eins og t.d. í Bretlandi.
Síma- og netsamband
Internet-tenging í Singapúr er góð og víða hægt að finna internet-kaffihús.
Farsímar virka vel í Singapúr. Þar er líka hægt að kaupa innlend frelsis SIM kort og nota meðan á dvöl stendur, en athugið að þegar SIM kort eru keypt þarf kaupandi að sýna sölumanneskjunni vegabréfið sitt. Flest hótel eru með langlínusamband til útlanda, svokallaða IDD símalínu, í hótelherbergjunum.
Tungan
Í Singapúr er enska (singlíska) opinbert tungumál heimamanna, en flestir innfæddir eru tvítyngdir og tala þá líka mandarín, malasísku eða indversku, svo fátt eitt sé talið.
Trúmál
Um það bil 42,5% innfæddra eru búddistar, 4.9% eru múslimar, 8,5% eru taóistar, 4% eru hindúar, 4,8% eru kaþólikkar, og 9.8% eru kristnir af öðrum toga.
Tími og ártal
Sami tími gildir allt árið, 8 klst á undan Íslandi og GMT-tíma. Singapúrbúar nota vestrænt ártal.
Veðurfar og landslag
Singapúr er staðsett nálægt miðbaug og hefur hitabeltisloftslag með fremur hátt rakastig, eða á milli 60-90%. Hitastigið rokkar frá 22 °C til 34 °C allan ársins hring. Árstíðir landsins eru tvær til þrjár, júní og júlí eru heitustu mánuðirnir. Frá ágúst og fram í október liggur oft þoka yfir eða mistur. Regntíminn gengur yfir í nóvember og desember.
Singapúr samanstendur af 63 eyjum og mældist árið 1960 581.5 km² að stærð, en Singapúrbúar hafa verið iðnir við landuppfyllingar og stækkanir. Því telur landið nú 704 km². Á langtímaplani borgarinnar er áætlað, að Singapúr muni stækka um aðra 100 km² fram til 2030.
Þjórfé
Það er hvorki til siðs né skylda að greiða þjórfé í Singapúr. Þjónustugjald er ávallt innifalið og telst 10% af heildarupphæð reikningsins.
Leigubílagjald
Í Singapúr er metragjald í leigubílum og þar af leiðandi óþarfi að semja um verð áður en haldið er af stað.
Varningakaup
Saga landsins er ung og þar af leiðandi er ekki mikið um að ferðamenn séu að kaupa antíkmuni eða sögulegar menjar. Í stórborginni Singapúr er það nútíminn sem heilsar gestum með öllum sínum gylliboðum í risastórum verslunarklösum, sem allflestir hafa vestrænan byggingarstíl og innanhússöluvarning.
Almennir opnunartímar skrifstofa og verslana
Almennar skrifstofur eru opnar á virkum dögum, mánudaga til föstudaga, frá 08:30 til 17:00. Bankar eru opnir mánudaga – föstudaga frá 10:00 til 15:00 og sumir eru opnir á laugardagsmorgnum. Flestar verslanir eru opnar alla daga frá 10:00 til 21.00. Undantekningar eru lögskipaðir frídagar.
Flug og flugþreyta
Flugþreyta getur sótt sterkt á fólk eftir langt flug og miklar breytingar á tíma og yfirferð tímabelta.
Hér koma nokkur góð ráð og skýringar.
Flugið:
- Spáið í hvernig tíminn er best nýttur til svefns í fluginu m.v. á hvaða tíma þið lendið - þ.a.s. reynið strax að stilla ykkur inná tímabelti áfangastaðar.
- Svefntöflur, eyrnatappar, svefnkragar, rakakrem, svefnleppar, vatn og vaselín/varasalvi er gott að hafa við hendina. Rakakremið og vaselínið gleymist oft, en þetta tvennt er til að verjast sérlega þurru lofti flugvéla. Eftir 10-11 klst. í þurrkinum geta varir orðið mjög þurrar og slímhúð í nefi orðið viðkvæm. Söngvarar sem þurfa sérstaklega að gæta að hálsi og raddböndum fljúga sumir hverjir með rykgrímu til að binda rakann í útöndunni og viðhalda þannig betri rakastigi í koki og nösum.
- Svo er það náttúrulega þetta týpíska með að hreyfa sig og drekka nóg af vatni.
- Einhverstaðar stendur að maður eigi ekki að drekka áfengi í löngu flugi, en margur segir það vera svo hentugt, til að drepa tímann, að það sé þess virði.
Eftir lendingu:
- Kenningar Bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA eru á þann veg að fyrir hvert tímabelti þurfi einn dag til aðlögunar. Skýring spíritista er sú að sálin sé svo laus úr líkamanum að hún haldi ekki í við þotuhraðann og því taki það hana lengri tíma að ná á áfangastað.
- Sagt er að verra sé að fljúga austur en vestur.
- Asískt húsráð við flugþreytu er að borða nóg af engifer. Það er öllu jafnan ekki vandamál að finna það í matnum hérna.
- Vestrænt húsráð er Melatonin. Athugið að Singapore Airlines selja það í flug-fríhöfn sinni.
- En fyrst og fremst er þetta spurning um að stilla sig inná nýjan tíma. Að vera sem mest utandyra við þá birtu sem ríkir og beita sig þeim aga sem þarf til að stilla sig strax inná staðartíma varðandi svefn. Þar geta svefnpillur nýst vel.
- Athugið að flest lyf fást án lyfseðla í apótekum í Asíu.
- Haldið áfram að drekka nóg af vatni.
- Þau einkenni sem þið getið átt von á að upplifa eru þreytuköst, sjóriða, meltingartruflanir, sljóleiki og sálarleysi.





