Hvað á að gera, upplifa og sjá í Singapúr

Litla Indland
Viltu kynnast indverskum kryddum og framandi réttum á ósviknum og einföldum veitingastöðum íbúa Litla Indlands. Viltu panta klæðskerasaumaðan silkifatnað, fara í Sri Veerama Kaliamman bænahofið eða hitta indverskan spámann. Litla Indland (Little India) hverfið er þá kjörinn áfangastaður.

Kínahverfið
Langar þig í snert af rammkínverskri menningu, góðan mat, lækningajurtir, nálastungumeðferð, silkiklæði, skoða glæsileg búddahof eða heimsækja sögusafn um einstæðar vinnukonur, sem voru fyrstu innflytjendurnar frá Kína. Allt þetta geturðu auðveldlega fundið í Kínahverfinu.

Arabíska hverfið
Á gangstéttum arabíska hverfisins er hægt að finna ógrynnin öll af teppum, mottum, fatnaði, vefnaðarvörum, hand- og ferðatöskum. Masjid Sultan moskan er stórglæsileg bygging. Þakhvelfing hennar er samansett af mörgum þúsundum glitrandi flöskubotnsglerjum. Skoðið jafnframt konungshöllina Istana Kampong Glam þar sem afkomendur sóldánsins Ali Iskandar Shah búa enn í dag. Arabískir matsölustaðir og tónlist eru á hverju götuhorni.

Clark quay
Þetta hverfi er best þekkt fyrir samansafn af góðum veitinga- og skemmtistöðum. Sumir eru staðsettir á bökkum Singapúrárinnar. Einnig er tilvalið að snæða kvöldverð á kvöldsiglingu eftir ánni.
Lestarstöð: Clark quay MRT.

Bugis Village
Þetta er lítil útimarkaðsgata með þéttsetnum sölubásum, sem fjölgar eftir því sem líður á daginn og um kvöldið er þessi spennandi markaður líflegastur.
Lestarstöð: Bugis MRT

Slim Lim Square
Hinn margfrægi verslunarklasi sem selur einungis raftæki. Verslun sem tækjaáhugafólk setur efst á heimsóknarlistann.

Raffles
Viltu gerast sannkallaður heimsborgari og bregða þér á Raffelshótelið? Þetta er ekki aðeins hótel, heldur gamall verslunarkjarni, leikhús og fjöldi einstakra veitingastaða. Singapúr-sling hanastélið var fyrst bruggað á Long Bar og sú magnaða ölstofa stingur svo skemmtilega í stúf við snyrtimennsku Singapúr, því þar vaða gestir spón og hnetuskeljar uppá ökkla inn vínstofuna og smakka alvöru Singapúr-sling kokkteil.

Raffles er stórmerkilegt nýlenduhótel með vínstofum og veitingastöðum, þar sem kunnir rithöfundar og annað víðfrægt fólk hefur gist. Enn í dag skartar gestalistinn stjörnum og þjóðarleiðtogum. Andrúmsloft staðarins hefur einstakan þokka og rómantík. Heimsókn á Raffles er ómetanleg.

Lestarstöð: City Hall MRT.

Orchard Road
"Aldingarðurinn" er þriggja km. löng verslunargata með a.m.k. 28 risastórum verslunarklösum. Góða skemmtun í búðarleik!
Lestarstöðvar: Orchard, Somerset, Dhoby Ghaut og City Hall.

Singapore City Gallery
Framkvæmdagleði og framtíðar byggingaráform Singapúrbúa er með eindæmum vel framsett og skipulögð í Singapore City Gallery. Þar er hægt að skoða byggingaráætlanir, byggingarlíkön og aðrar framkvæmdir borgarinnar næstu 10 – 50 árin.

Nætursafarí
Þetta er fyrsti nætursafarí veraldar (opnað 26. maí 1994). Hér ferðast gestir í litlum sporvagni um trópískan regnskóg þar sem villt dýr skógarins birtast gestum í skjóli nætur. Stórkostleg upplifun fyrir unga jafnt sem aldna.

Frístundaflipp á Sentosa
Eyjan Sentosa var hönnuð sem skemmtileg dægradvöl og strandparadís fyrir alla fjölskylduna. Þar er hægt að synda í sjónum, leika sér á hreinni strönd, fara í golf, kajaksiglingu, línuskauta, strandblak, heimsækja höfrungalón, vatnaveröld og sædýrasafn o.fl. Hægt er að taka kláfferju á milli Sentosa og Singapúreyju.

Singapúr Flyer
Við Marínaflóann stendur stærsta útsýnishjól heims (þar til risahjólið í Peking verður tilbúið), 165 m hátt. Hjólið opnaði formlega 15. apríl 2008 og tekur 37 mín. að fara einn hjólahring með útsýni til allra átta, t.d. yfir til Malasíu og Indónesíu. Hægt er láta fara vel um sig í vagninum og panta kampavín og kavíar og njóta veiganna á ferð um háloftin.

Vínenglar
Á jarðhæð byggingarinnar Parkview Square er að finna "elegant" einkavínklúbb sem heitir Divine Wine Extraordinaire. Á kvöldin leikur jassband fyrir gesti og hægt er að panta eðalvín úr 12 m. háum vínturni. Ef flaskan hvílir hátt uppi í turninum senda barþjónarnir svonefnda vínenglastúlku upp í loftið til að sækja vínið.

Þarna geta gestir horft á vínengil sinn klífa á fjaðurmagnaðan hátt í klifurlínu, íklædda tjullpilsi og kynþokkafullum barmtoppi. Vert er að taka fram, að klúbburinn er aðeins ætlaður gildum meðlimum. Það er hægt að komast inn á virkum dögum ef hringt er á undan sér og panta borð eða mæta að kvöldi til í spariklæðnaði (aðgangur meinaður þeim sem klæðast stuttbuxum eða gallabuxum). Þetta er háklassa staður, sem gaman er að sækja heim.

Útsýni yfir alla borgina
Það er óhætt að segja að Singapúr sé lítil eyja, sem rembist við að nýta allt landsvæðið eftir fremsta megni. Þar hafa því risið háar byggingar, hver annarri glæsilegri. Hæsta veitingahús borgarinnar er enn á Swissotel Stamford hótelinu. Þar geta matargestir látið fara vel um sig á efstu hæð hússins (á 73. hæð) og notið útsýnis yfir borgina á meðan meðan þeir fá lúxusþjónustu og framúrskarandi góða máltíð.

Þjóðhetja Singapúr
Sir Thomas Stamford Bingley Raffles, hinn merki herramaður og þjóðarhetja Singapúr, var einn af stofnendum þessarar bresku nýlendu í Austur-Asíu. Hinn 6. febrúar 1819 tókst Sir Thomas að semja um, að breyta Singapúr í fríhöfn. Í dag er höfnin ein sú stærsta í heiminum. Sir Thomas lét einnig teikna upp nýtt hverfi og borgarskipulag, þar sem risu ráðhús og fleiri borgaralegar þjónustubyggingar. Upprunalega hét hverfið Forbidden Hill, en gengur í dag undir nafninu Fort Canning Hill. Tilvalið er að skoða þessar gömlu byggingar ásamt bronsstyttu af þjóðarhetjunni. Styttuna er að finna á milli Viktoria Theatre og Concert Hall.

Listmenning
Það er líf og fjör allt árið um kring í listamenningu borgarinnar. Við hvetjum áhugasama leikhúsgesti til að kynna sér mánaðarlega dagskrá Singapúr á heimasíðu leikhúsanna, t.d. á vefslóð Action leikhússins . The Singapore Repertory Theatre er leikhús, sem býður upp á klassísk leikhúsverk höfunda á borð við Shakespeare, Tennessee Williams og Arthur Miller.

Unnendur danssýninga er bent á að skoða mánaðarlega dagskrá Singapore Dance Theatre .

Þeir sem vilja heimsækja nýlistasafnið er bent á Singapore Art Museum (SAM). Safnið býður gestum upp á suðaustur-asíska nútímalist.

Tónlist
Í Singapúr er af mörgu að taka fyrir tónelsk eyru, t.a.m. getur jassáhugafólk valið úr röðum úrvals jassbanda og sérstakra klúbba. Við mælum með lifandi jass á bæði Balaclava og The Bar & Billiard Room á hinu þekkta Raffles hóteli. Unnendur klassískrar tónlistar geta vitjað Sinfóníuhljómsveitar Singapúr í nýju tónleikahöllinni Esplanade. Dagskrá sinfóníuhljómsveitarinnar er hægt að nálgast á Esplanade .

Álit okkar
Það er persónulegt mat erindreka Óríentals, að Singapúr sé borg sem gaman er að heimsækja og er vel hægt að komast yfir áhugaverða skoðunarstaði borgarinnar á tveimur dögum. Þetta er lítil borg, sem hefur mikið úrval af girnilegum veitingastöðum, flottum skemmtistöðum, skapandi menningarlífi og auðvelt að finna staði, sem mæta sérstökum áhuga og þörfum hinna gestkomandi.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.