Taíland

Hér er þitt stóra austurlenska ævintýri

Hvergi í Asíu má finna eins fjölbreytta og góða afþreyingu eða ævintýri eins og í Taílandi.

Taíland er heimur út af fyrir sig, heimur unaðssemda og skemmtilegrar afþreyingar. Þar geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það er Bangkok með sína mögnuðu vídd í næturlífi, mat, drykk og verslun; suðrænar trópískanskar eyjur með hvítum ströndum, grilluðum humri og blaktandi kókospálma; eða exótík fjallanna í norðri, þar sem finna má djúpfornar hefðir, merkilegar minjar og frumstæða ættbálka.

Óríental býður þér tækifæri til að sannreyna þessa fullyrðingu hér að ofan. Við trúum því, að þeir sem upplifi Taíland eins og við höfum gert, muni búa að því alla ævi.

Við bjóðum ykkur, lesendur góðir, velkomna í mystíska og seiðandi upplifun hinna kynngimögnuðu Austurlanda. Í Taílandi gefast þér tækifæri til að kynnast ævintýrum, sem eru það langt frá Íslands ströndum, að það jaðrar við að ferðast í annan heim, aðra plánetu.

Viltu forna menningu? Komdu til Ayutthaya, Sukhothai og Chiang Mai.

Viltu geggjun asískrar nútímamenningar? Ekki yfirgefa Bangkok.

Viltu unað exótískra stranda? Komdu með til Koh Chang, Koh Phi Phi eða annarra exótískra eyja.

Viltu príla fjöll? Komdu til Chiang Rai, anddyri Gullna þríhyrningsins.

Viltu versla? Bangkok er staðurinn.

Viltu góðan mat? Taíland er staðurinn.

Viltu geggjaða skemmtun? Fáðu þér annan kokkteil og líttu í kringum þig hvar sem er í Taílandi.

Konungsríkið Taílandi

Ratcha Anachak Thai

Konungur:
Bhumibol Adulyadej

Forsætisráðherra:
Samak Sundavavej

Stjórnarhættir:
Lýðræði

Höfuðborg:
Bangkok (Krung Thep Mahanakhon)

Opinbert tungumál:
Taílenska

Sjálfstætt frá:
1238

Þjóðhátíðardagur:
5. desember
(afmælisdagur konungsins)

Íbúafjöldi:
65.493.298 (júlí 2008)

Lífslíkur við fæðingu:
72,83 ár

Þjóðabrot:
Taílendingar 75%
Kínverjar 14%
Aðrir 11%

Trúarbrögð:
Búddismi 94,6%
Íslam 4,6%
Kristni 0,7%
Önnur 0,1%

Stærð lands:
514.000 km2

Ræktað land:
27,54%

Hæsta fjall:
Doi Inthanon (2.576 m.y.s.)

Landsframleiðsla á mann:
$7.900

Skipting vinnuafls:
Landbúnaður 49%
Iðnaður 14%
Þjónusta 37%

Hlutfall fólks undir fátæktarmörkum:
10%

Gjaldmiðill:
Batt (THB)

Regntími:
Maí til september

Þjóðsöngur Taílands Söngur konungsins
Byggt á upplýsingum úr THE WORLD FACTBOOK CIA - Central Intelligence Agency

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.