
Chiang Mai
Taílands tærasti tónn
Chiang Mai er hin gamla höfuðborg Lanna veldisins er ríkti yfir Norður Taílandi öldum saman eða allt þar til ríkið var sameinað Síam og Taíland varð til. Þetta er ljúf og menningarleg borg rík af minjum frá 11. og 12. öld. Þrátt fyrir að vera næststærsta borg Taílands, á eftir Bangkok , er fátt líkt með borgunum tveimur.
Chiang Mai er staður til að kynnast á rólegum nótum. Íbúarnir eru fágaðri, tala hægar og skýrar en samlandar í suðri, eru broshýrari og einlægari. Þetta er háskólaborg með sterkri hefð fyrir listum og handverki.
Í kringum gamla bæinn er síki sem grafið var til varnar innrásum nágrannaríkjanna. Hluti voldugra borgarmúra stendur þar enn. Innan múranna eru lágreistar byggingar; íbúðarhús, nuddstofur, musteri, bókabúðir og verslanir. Skemmtilega sveitó hrærigrautur.
Í Chiang Mai sjást fleiri fornbókabúðir en gógóbarir, fleiri bakpokaferðalangar en túrhestar, fleiri fjallgönguskór en háir hælar.
Yfir borginni gnæfir fjallið Doi Suthep og What Pra, helgasta musteri Norður Taílendinga, í 1100 m hæð. Þaðan er einstakt útsýni yfir allan dalinn. Í nágrenni Chiang Mai er fjöldi áhugaverðra staða. Gróin sveit með eplaökrum og aspasvöllum, bambusskógum og þorpum dularfullra flökkuþjóða.
Gamall taktur, svalar nætur, sólríkir dagar, breið bros og ljúfar kveðja heimamanna gera Chiang Mai að uppáhaldi margra.
Það er frá Chiang Mai sem flestir leggja í ferðir til skoðunar á frumstæðum ættbálkum til fjalla og þeirri iðagrænu náttúrufegurð og fjallasýn sem einkennir norðrið.





