Bangkok

Englaborgin í austri

Bangkok, gamla næturdrottning Austurlanda. Englaborgin í austri. Með sitt vafasama orðspor, geggjun, andstæður og óendanlegan fjölbreytileika. Nokkuð skökk og skæld, sumstaðar myrk og krassandi, annars staðar fægð og fínpússuð.

Búddismi og gjálífi, skýakljúfar og gömul hof, götubúllur og svalir barir, pingpongsjóv og listasýningar blandast saman í borg þar sem allt leyfist.

Bangkok fær fyrstu verðlaun fyrir líf og fjör. Í samanburði dottar London, New York drattast áfram, Tokyo er köld, Kaupmannahöfn langdrukkin, Londan þreytt, Barcelona værukær og Buenos Aires einsleit.

Bangkok sem þýðir "þorp villtu ólífutrjánna", er þó í raun viðurnefni borgarinnar, rétt nafn hennar er Krung Thep eða "Englaborgin".

*Fullt nafn Bangkok er:*

"Hin stórkostlega borg engla, geymslustaður dýrmætra eðalsteina, hið mikilfenglega, göfuga og ósigranlega ríki, hið dýrlega heimili hinna níu konunglegu djásna, hinn konunglegi dvalarstaður og höll, hinn guðdómlegi verndarstaður og hið lifandi afdrep endurfæddra anda."

Á taílensku hljómar þetta:
Krung Thep Mahanakhon Amon Rattanakosin Mahinthara Ayuthaya Mahadilok Phop Noppharat Ratchathani Burirom Udomratchaniwet Mahasathan Amon Piman Awatan Sathit Sakkathattiya Witsanukam Prasit.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.