Tveir ólíkir menningaheimar

Ævintýri Taílands og Abu Dhabi

Arabíuskagi er utan landamæra Óríental en þegar gott tækifæri til landkönnunar býðst e því tekið. Etihad, ríkisflugfélag Sameinuðu arabísku furstadæmana, býður einstaklega góð kjör á flugi frá Keflavík til Bangkok með viðkomu í Abu Dhabi þar sem eyðimerkursafarí, líflegt skemmtanalíf og menjar um veldi emíra og sultana bíða þess að vera uppgötvað og upplifað.

Eftir tvo daga á Arabíuskaga verður haldið áfram til Taíland og við komu til Bangkok er ekið til Hua Hin þar sem íslenskur fararstjóri býður gesta. Hua Hin er kyrrlátur strandbær sem byggir á elsta grunni ferðaþjónustu í Taílandi. Bærinn hefur verið afdrep Bangkokbúa sl. öld og í dag býr konungur Taílands rétt utan við bæinn því loftslag og andrúmsloft Hua Hin er hollara en höfuðborgarinnar.

Miðbær Hua Hin með gömlu lestarstöðina og þröng stræti fyllt veitingstöðum og börum liggur að höfninni og þar í kring raðast sjávarréttastaðir á bryggjusporðum út á sjó. Fjölbreytt ferðaþjónusta er til staðar hvort sem hugurinn stendur til vatnasports, golfiðkunar, göngutúra og náttúruskoðunnar.

Eftir 12 daga á ströndinni er haldið aftur til Bangkok þar sem dvalið verður tvær síðustu næturnar í Asíu. Bangkok er spennand og iðandi asísk stórborg þar sem verslunar- og skemmtunartækifæri eru fjölmörg. Í Bangkok njóta ferðalangar einnig íslenskrar leiðsagnar og umsjónar.

Þessar ferð eru svokallaðar opnar hópferðir sem þýðir að sameinast er um brottför frá Íslandi svo hagkvæm hópfargjöld náist. Í Abu Dhabi er sameiginleg valfrjáls dagskrá en við komu til Hua Hin í Taílands verður hverjum ferðlang þjónað sjálfstætt því mörg hótel eru í boði auk þess sem kostur er gefinn á ferðum frá Hua Hin.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.