
Settu saman þína Einkaferð
1. Hakaðu við hótel á hverjum áfangastað. Valin hótel birtast hér til hliðar auk verðs.
2. Þegar endanlegt val liggur fyrir smellirðu hér, fyllir út form sem opnast og sendir okkur fyrirspurn.
Senda beiðni!Þitt val
- Bangkok
- Phuket
Bangkok, Phuket og skonnortusigling á Suwan Macha
Heilbrigður veruleikaflótti
Fjögurra daga sigling um Taílandsflóa, trópískar eyjur og framandi þjóðgara
Flogið frá Keflavík til Bangkok með millilendingu í Evrópu. Lent í hinni villtu og margslungnu Bangkok og dvalið þar tvær nætur áður en flogið er áfram til Phuket og dvalið þar í 6 nætur auk þess að sigla í fjóra daga á glæsilegri skonnortu á milli draumkenndra eyja í Taílandsflóa og njóta frábærra veitinga, yndislegrar þjónustu og góðs aðbúnaðar.
Phuketeyja er draumur í dós. Hvítar sandstrendur, litríkir kokkteilar, grillað sjávarfang, sjósport og góðir skemmtistaðir.
Á Phuketeyju, meginlandi Taílands og í sjónum allt í kring eru fjölbreyttir kostir varðandi útivist og sport.





