Velgjörðaferðir

Komdu til Asíu og breyttu rétt

Flest lönd Suð-Austur Asíu er enn svokölluð þróunarlönd þar sem almenn velferðarkerfi hefur ekki byggst upp öllum til hagsbóta. Af þeim ástæðum á sér stað mikið og kröftugt starf stofnanna, einstaklinga og félagasamtaka sem vinna að margvíslegu þróunar,- neyðar- og hjálparstarfi. Í sveitum og til bæja hafa verið settar upp þjónustustöðvar, stjórnstöðvar, munaðarleysingjahæli, sjúkrastofnanir o.fl. sem byggja starf sitt mikið á sjálfboðastarfi.

Við hjá Óríental getum skipulagt og aðstoðað fólk við að komast til Asíu og velja rétta aðila til að starfa með. Hægt er að útfæra svona ferðir á margvíslegan máta fyrir einstaklinga, hópa eða fjölskyldur. Vel má skipuleggja ferðir sem eru blanda af starfi og leik, t.d. vika við hjálparstarf og vika á strönd til hvíldar. Sumir staðir þyggja aðstoð í nokkra daga á meðan aðrar vænta lengri dvalar. Reynt er að nýta þekkingu, reynslu og menntun hvers og eins svo starfskraftarnir nýtist sem best. Hvort sem þú ert pípari, arkitekt, bankastjóri, kennari eða þingmaður finnum við hentug störf fyrir þig.

Allt starf Óríental við framangreind mál er einnig unnin í sjálfboðavinnu.

Hafðu samband og sjáðu hverju við getum áorkað saman.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.