
Jóga og Heilun
Asía er vagga sálar- og líkamsræktunar
Klausturvist, jógaskólar og fjölbreytt úrval námskeiða og meðferða í heilun er í boði í Asíu og innan vébanda Óríental eru sérfræðingar í þeim kostum sem bjóðast hvað varðar bæði hefðbundnar og óhefðbundnar leiðir til að bæta líkama og sál.
Á Koh Samui eyju við Taíland hefur skapast einstakur vettvangur til að nálgast fjölbreytta þjónustu til meðferðar og kennslu í jóga, heilun og líkams- og sálarræktun. Einangrun eyjunnar, fegurð og þokki er kjör bakgrunnur til að leita inná við og breyta og bæta.
Upp til fjalla Taílands eru afskekkt musteri þar sem hægt er að dvelja um lengri og skemmri tíma til náms og hugleiðslu. Vipassana hugleiðslukerfið hefur náð mikilli útbreiðslu og er iðkað af fjölmörgum meisturum í nágrenni Chiang Mai auk hefðbundins búddisma.
Balí hefur lengi verið þekkt miðja hugleiðslu og íhugunar af ýmsum toga. Þar starfa fjölbreytilegar miðstöðvar mannræktar í þeirri vöggu sem trúarlíf og andagift eyjaskeggja hefur skapað.
Hafið samband og leitið upplýsinga.





