
Spa og Detox
Dekur, uppbygging og hreinsun
Það er aldagömul hefð fyrir nuddi og margvíslegum hressingar og fegrunarmeðferðum í Asíu. Í Taílandi er góður nuddari í hverju koti. Þar er sú hefð svo rótgróin að hún jafnst á við hefð þeirra í matargerð. Það þykir jafn sjálfsagt fyrir hrísgrjónabóndann að fá teygjur og nudd heima að loknu streði á akrinum undir brennandi sólinni einsog fyrir langsetinn skrifstofuþræl á leið heim að setjast í fótanudd. Á Balí er ekki óalgengt að sjá fullorðna konu í afdal með kaffi- og jurtamaska í andlitinu eða sjá fólk sitja hálfnakið í náttúrulegri heilsulaug.
Fornar staðbundnar hefðir undir áhrifum frá Indlandi, Kína, Japan og vesturlöndum hafa þróast á fjölbreyttan máta þannig að úrval meðferða er margbreytilegt.
Detox er nýlegt fyrirbrigði þar sem leitast er við að ná jafnvægi á líkamanum og hreinsa út margvísleg auka- og eiturefni sem erfitt er að komast hjá að innbyrða eða verða fyrir áhrifum af í okkar nútíma heimi. Því lengra sem við búum frá náttúrunni því meiri líkur eru á að við séum sífellt að innbyrða óæskileg og eitruð efni í matvælum, hreinlætisefnum og jafnvel í andrúmsloftinu. Þeir sem hafa þurft að nota sterk lyf eða orðið háðir óheilbrigðu mataræði, lyfjum eða lífstíl hafa oft á tíðum safnað miklu af eiturefnum í líkaman sem nauðsynlegt er að skola út. Detox er samheiti yfir margvíslegar meðferðir til hreinsunar.
Hafið samband og leitið upplýsinga.





