
Vatnaveiði í Taílandi
Gjöful vatnaveiði í ævintýralegu umhverfi
Í Norður-Taílandi hafa íslendingar sett á stofn veiðiþjónustu sem nefnist Asian Angling Adventures eða A3 og er staðsett í Chiang Mai borg.
Þekktur leiðbeinandi frá Íslandi, Jón Ingi Ágústsson hefur veg og vanda af þessari starfsemi en hann hefur verið búsettur í Chiang Mai undanfarin 8 ár.
Farið eru um falleg árgljúfur Ping árinnar, Sirikit- og Bhumipol stöðuvatnanna auk fjölda annarra vatna þar sem góð veiðivon er. Fiskitegundirnar sem sóst er eftir eru Risa Snákhaus (Giant Snakehead) og Frumskógar Aborri (Jungle Perch), en báðar tegundirnar eru frábærir sportfiskar. Veitt er bæði á lúrur og flugur.
A3 býður upp á dagstúra frá Chiang Mai borg auk lengri túra til Sirikit- og Bhumipol stöðuvatnanna. Túrarnir samhæfast vestrænum kröfum um öryggi og áræðanleika og fyrirtækið notast við 5-6 metra langa hraðbáta, auk kayaka til veiðanna. Aðbúnaðurinn við vötnin er “rustic” en þægilegur. Gist er í tjöldum á flotprömmum, sem útbúinn eru vestrænum salernum, sturtu og öðrum þægindum. Ein helsti kostur veiða í Norður-Taílandi er nánast engar moskítóflugur er við vötnin þannig að fólk er að mestu leiti laust við þau hvimleiðu kvikindi.
Ferð að þessu tagi er ekki einungis áhugaverð fyrir veiðimenn, heldur alla unnendur nátturu, þar sem margir af þeim stöðum sem heimsóttir eru skarta miklu nátturlífi og algengt er að sjá t.d. ýmsar tegundir af öpum og fiskiketti auk mikils fuglalífs.
Óríental er umboðsaðli A3 og sér alfarið um sölu og skipulag ferða íslendinga á þessi spennandi veiðisvæði.
Hafið samband og leitið upplýsinga og tilboða í veiðiferðir til Norður-Taílands.





