Fararheill í Taílandi

Steinríkur sagði eitt sinn; Taílendingar eru tjúll. Steinríkur og félagi hans Ástríkur voru sigldir menn og höfðu sopið á ýmsu göróttu seyðinu. Þarna fór Steini nokkuð nærri. Taílendingar eru að mörgu leyti skrítnir fuglar. Broshýrt, vingjarnlegt og hjálpsamt fólk upp til hópa. En undir niðri kraumar að sjálfsögðu ýmislegt sem ekki sést. Stundum er sagt að í Taílandi séu þrjár þjóðir; yfir-, mið- og lágstéttin. Viðmið og lífsgildi þessara hópa geta verið mjög ólík. Allir sameinast þeir þó í ást á konungnum og þjóðarstolti.

Kurteisi er þeim í blóð borin og tillitssemin og hógværðin er alls staðar sjáanleg. Taílendingar lykta ekki, þeir eru ekki háværir og forðast í lengstu lög að gagnrýna eða ögra nokkrum manni. Þetta er fólk málamiðlunar fremur en átaka, eins og saga þeirra sýnir skýrt.

En sökum þess að Taílendingar forðast átök og gagnrýni er mjög auðvelt að gera siðferðileg, eða umgengnisleg, mistök án þess að nokkur sýni því neikvæð viðbrögð. Dæmi þess má sjá víða. Ferðamenn koma til þessarar hógværu þjóðar og misskilja brosið sem velþóknun við framkomu þeirra. Fólk klæðist ósiðsamlega og hegðar sér á grófan máta án þess að því séu sýnd hin minnstu viðbrögð eða neitt gert til að leiðrétta viðkomandi.
Það er því mikilvægt að kynna sér vel hvað má og hvað má ekki í landi brosanna.

Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.