Gönguferð um Norður-Taíland og Laos

Ævintýralegur leiðangur inní frumskóga og um fornar fjallaborgir í Laos og Norður Taíland í nálægð við náttúru og heimamenn

Þetta er ævintýralegur leiðangur um fjöll og firnindi Norður Taílands og Laos auk góðra daga í hinum ljúfu bæjum Luang Prabang og Chiang Mai og stuði stórborgarinnar Bangkok með verslunartækifærum og fjölbreyttri skemmtun.

Þetta er Asíuskalinn eins og hann hljómar bæði dýpst, hæst og skærast.

Dreymir þig um forna menningu, ævintýralega náttúru og framandi samfélög þar sem heimamenn bjóða þér til kvöldverðar, söngs og dans. Hlusta á þjóðsögur og þjóðlagatónlist sem leikin er af einlægni og snilld innfæddra og horfa á þá stíga dans að fornum sið. Heimsækja helg hof og bera augum búddalíkneski úr skíra gulli. Skoða sjaldgæfar fuglategundir og safna lækningajurtum sem vaxa villt í frumskógum austursins. Langar þig til að prófa að spinna baðmull, smíða leikföng eða þreskja hrísgrjón í afskekktu þorpi. Eða jafnvel að leita að gulli í Mekong fljótinu sem rennur úr 4900 m hæð Himanlæjafjallanna.

Chiang Mai er staður til að kynnast á rólegum nótum. Íbúarnir eru fágaðri, tala hægar og skýrar en samlandar í suðri, eru broshýrari og einlægari. Þetta er háskólaborg með sterkri hefð fyrir listum og handverki. Það er frá Chiang Mai sem flestir leggja í ferðir til skoðunar á frumstæðum ættbálkum til fjalla og þeirri iðagrænu náttúrufegurð og fjallasýn sem einkennir norðrið.
Luang Prabangbær er lítill, íbúar einungis um 40.000 og þó byggðin sé lágreist er hún þétt. Auðvelt er að komast um allt á fæti eða reiðhjóli. Bærinn er einsog lifandi safn þar sem andrúmsloft liðins tíma og fornar hefðir eru áþreifanlegar og lifandi. Bærinn er svo ljúfur og hljóður að hann minnir helst á íslenska bjarta sumarnótt. Það verður yndislegt að enda ævintýraferðina í þessum dásamlega bæ. Á nýlendutíma Frakka var sagt að enginn kæmist lengra frá París en til Luang Prabang og sem dæmi um hversu afskekkt borgin var á þeim tíma þá tók jafn langan tíma að ferðast frá París til Saigon einsog frá Saigon og upp Mekong til Luang Prabang. En nú er öldin önnur og endar ferðin á flugi til Bangkok sem tekur rétt um eina og hálfa klukkustund.

ÁFANGAR: Bangkok 2 dagar, Chiang Mai 2 dagar, Mai Mae Kampong 1 dagur, Chiang Saen 1 dagur, Muang Sing 1 dagur, Ban Lao Khao 1 dagur, Ban Tamy 1 dagur, Luang Nam Tha 1 dagur, Pakbeng 1 dagur, Khamutjaldbúðirnar 1 dagur, Luang Prabang 4 dagar.

Hápunktar: Hin villta tryllta Bangkok, lífsróður norðursins og fjallaættbálkar Chiang Mai, gengið um te-og kaffiekrur og eldaður kvöldverður með heimafólki Mai Mae Kampong, bænahofið Chedi Luang í Chiang Saen, fjallafólkið í Muang Sing heimsótt, hlusta á þjóðsögur, þjóðlagatónlist og horfa á dans í Ban Lao Khao, spinna baðmull og þreskja hrísgrjón Ban Tamy, bæjarkyrrð Luang Nam Tha, sigling á Mekong fljótinu áð í frumstæðu þorpi Pakbeng, tjaldbúðir á landsvæði rammgöldróttra Khamushamanisma, fornar húsbyggingar og hefðir Luang Prabang.

Helstu upplýsingar
Nafn:
Gönguferð um Norður-Taíland og Laos
Lengd:
17 dagar/16 nætur
Tegund:
Göngu- og ævintýraferð
Verð:
Kr
Skoðið líka:
Grand Angkor Grand Kólóníal Hjólað um Búrma
Sendu mér leiðarlýsingu!
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.