Grand Kólóníal

Lan Xang, Kampuje og Annaman

Þessi ferð er í raun tvíþætt. Í fyrsta lagi verður leitast við að skoða Asíu út frá sögu og menjum nýlendutímans og í öðru lagi verðum um leið kappkostað að endurskapa þá elegant stemmningu sem einkenndi þennan tíma á meðan á ferðalginu stendur. Gist verður á þekktum hótelum frá nýlendutímanum eða stöðum sem hafa verið byggðir í þeim stíl og fararmátinn verður sem líkastur því er gerðist á 19. Öld. Glæsilegar eimreiðar og vel snikkaðir fljótabátar verða meðal fararskjóta.

Indókína var nýlenduveldi Frakka sem sameinaði ríki sem áður nefndust Lan Xang, Kampuje og Annaman en urðu síðar heiminum kunn sem Laos, Kambódía og Víetnam. Flestar nýlendur Evrópskra ríkja í Asíu endurheimtu sjálfstæði sitt við þær umbreytingar sem fylgdu seinni heimstyrjöldinni þegar nýlenduherrarnir áttu í vök að verjast heima fyrir. Það voru nýjir tímar upplýsinga og þjóðerniskenndar en fyrir flestar þessar nýfrjálsu þjóðir var leiðin löng og erfið við að skapa ný ríki stýrð af heimamönnum.

Frakkar skildu eftir sterka arfleifð í byggingalist og borgarskipulagi í nýlendum sínum. Breiðstræti og glæsilegar kirkjubyggingar, plantekruvillur og hótel sem sameina fornar hefðir beggja heima. Áhrif franskrar matargerðar seitlaði inní krassandi eldhús asískra kokka og þeirra gömlu þegnar kunna vel að meta brauð, bakkelsi og rauðvínstár.

Í þessari einstöku ferð verður gist á nokkrum af þekktustu nýlenduhótelum Asíu svosem The Raffles í Singapúr og Oriental í Bangkok. Ekið verður með Austurlandahraðlestinni frá Singapúr til Bangkok með viðkomu í Malasíu. Rústir Angkor verða rannsakaðar í hægindum af fílabaki og siglt verður á Mekong til Phnom Penh með fornum vatnabát.
Ferðinni líkur í Saigon þar sem varðveist hafa einhverjar fallegustu byggingar frá franska nýlendutímanum í Víetnam.

Fararstjóri ferðarinnar verður Dr. Blagra Blueeyed, íslensk-belgískur alþýðufræðimaður og skáld sem dvalið hefur víða í Indókína og Austurlöndum.

Áfangar: Singúr 2 dagar, Austurlandahraðlestin 3 dagar, Bangkok 2 dagar, Siem Reap og Angkor 3 dagar, Phnom Penh 2 dagar og Saigon 3 dagar.

Hápunktar; Einstök stemmning Austurlandahraðlestarinnar, Óríental hótelið í Bangkok, forn ævintýri Angkor, náttúruundur Tonle Sap og Mekong og sterkur nýlendubragur Saigon.

Helstu upplýsingar
Nafn:
Grand Kólóníal
Lengd:
15 dagar/14 nætur
Tegund:
Skemmtun og landkönnun
Verð:
Kr
Skoðið líka:
Konungsríki... Grand Indókína Grand Indónesía
Sendu mér leiðarlýsingu!
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.