
Grand Taíland
Toppar Taílands í Bangkok, fjallendi norðursins og á Samuieyju
Þessi ferð er samþjöppuð en samt eins afslöppuð og hægt er að ímynda sér. Þrennt er það sem við hjá Óríental teljum bera hæst í Taílandi; hið geggjaða borgarlíf Bangkok, villt náttúra fjalla norðursins og trópískar eyjur í tærum Taílandsflóa.
Ferðin byrjar í Bangkok þar sem hið vafasama orðspor borgarinnar er opnað gestum á varfærinn hátt í Bangkok Express skoðunarferð að næturlagi. Borgin stendur fyrir margt annað en seið næturinnar. Konungshöllin og kínahverfi eru rannsökuð og verslunartækifæri kynnt. Chiang Mai borgin situr í fjallendi sem telst til Himanlæjafjallgarðsins og þegar þangað er komið slær allt annar tónn inn í ferðina. Þarna verður gengin einhver ljúfasta og áhugaverðasta fjallgönguleið Himanlæjadýrðarinnar á vit framandi ættflokka og stórkostlegrar náttúru. Borgin sjálf – rós norðursins – er kapítuli út af fyrir sig og býr að ríkulegri sögu og sterkum einkennum. Þetta er forn höfuðborg Lanna veldisins sem var vagga þeirrar menningar og yfirbragðs sem Taíland er í dag hvað stoltast af.
Eyjan Koh Samui er einsog hið fullkomna póstkort. Blár sjórinn, blaktandi pálmar og hvítar strendur. Ímyndið ykkur hengirúm, sólarolíu, grillað sjávarfang og kalt hanastél.
ÁFANGAR: Bangkok 3 dagar, Chiang Mai og norður Taíland 5 dagar, Koh Samui 5 dagar og Bangkok 2 dagar.
Hápunktar: Hin ævintýralega og seiðandi Bangkok. Hin friðsæla fjallaborg Chiang Mai. Náttúruskoðun í fjöllum Norður-Taíland. Sæld á Koh Samui-eyju.
Helstu upplýsingar
- Nafn:
- Grand Taíland
- Lengd:
- 10 dagar/9 nætur
- Tegund:
- Landkönnun og sæld
- Verð:
- Kr
- Skoðið líka:
- Grand Angkor Hjólað um Búrma Róbinson Krúsó ferð





