Hjólað um Suður-Laos

Draumkennd hjólaferð um Fjögurþúsundeyjuósinn, Póhofið, fáfarna slóða, afskekkt þorp og eftir bökkum Mekongfljótsins

Hjólreiðaferðin hefst í Norð-austur Taílandi þar sem hjólað er á landsvæði sem nefnist Ísaan og er frægt fyrir taílenska kántrímúsík, kryddaðan mat og sérlega einlægt og léttlynt fólk. Einskonar sígaunar Taílands. Þetta eru þeir sem aka túktúkunum í Bangkok, syngja á Karaokestöðunum, selja somtamsalöt og sæta grillpinna á götum úti og eiga flest hin frægu bros Taílands. Frá Ísaan er hjólað yfir til Suður-Laos þar sem forn menning Angkorveldisins svífur yfir vötnum. Og viti menn þarna er sama fólkið því Ísaan tilheyrði áður Laos – og öfugt, því einhvern tíman réði Síam yfir Laos. Fæstir þarna kæra sig kollótta um sögu og pólitík. Það skiptir þá ekki máli hvaða burgeis fer með völd svo lengi sem Mekongfljót rennur, heimabruggið gerjast og hrísgrjónin vaxa. Í Suður Laos verður hjólað um svæði sem er sorfið og mótað af Mekongfljóti. Fjögurþúsundeyjaósinn er kannaður af bát og úr hnakk og mögulega verða Irrawaddy höfrungarnir á vegi hjólakappa.

Fornar menjar merkra menningaheima eru rannsakaðar. Þarna fóru Champar um í yfirreiðum sínum frá því svæði sem nú tilheyrir Víetnam. Til merkis um það er bærinn Champasak. En Khmerarnir frá Kambódíu skildu eftir sig enn merkari menjar. Póhofið er einsog sveipað dýrlegum helgileik þar sem það situr við fallegar tjarnir uppá hásléttunni. Það er einstakt að upplifa bæði náttúru og fornminjar því öll Suður Laos er enn svo fáfarin og friðsæl. Preah Vihan hofið í Ísaan var byggt á gullaldartíma Angkor og þó 700 ár séu liðin frá því að hofið var byggt er það enn bitbein og átakavaldur á milli Taílands og Kambódíu. Þetta höfðinglega fjallamusteri verður skoðað í upphafi ferðarinnar.

Það eru dýrleg ævintýri sem bíða hjólreiðakappa. Þetta er ferð utan hins hefðbundna ramma túrisma með mikilli nálægð við daglegt líf heimamanna. Lagðir verða að baki rúmir 600 km á 12 dögum og eru flestar leiðir auðveldar þó vissulega reyni á þol og krafta. Óhætt er að fullyrða að ferðin er við hæfi allra fullfrískra.

ÁFANGAR: Bangkok 1 dagur, Ubon Ratchatani 1 dagur, Khong Jiam 1 dagur, Champasak 1 dagur, Don Khong 1 dagur, Don Det 1 dagur, Tad Fane 1 dagur, Tad Lo 2 dagar, Pakse 1 dagur

Hápunktar: Hin ævintýralega og seiðandi Bangkok, bænahofið Preah Vihan í Ubon Ratchatani , Langhalabátasigling í Khong Jiam, Póhofið og forn menning Angkor í Champasak, fjögurþúsundeyjaósinn í Don Khong, Li Phi fossinn og Irrawaddy höfrungar í Don Det, kaffiræktunarsvæði Tad Fane, fagrar fjallshlíðar, ættbálka heimsókn og fílareið í Tad Lo, kjarnagóð afslöppun í Pakse.

Helstu upplýsingar
Nafn:
Hjólað um Suður-Laos
Tegund:
Hjóla- og ævintýraferð
Lengd:
12 dagar
Brottför:
31. október
Verð:
395,000 Kr
Skoðið líka:
Grand Angkor Hjólað um Búrma Róbinson Krúsó ferð
Sendu mér leiðarlýsingu!
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.