Mekong

Ævintýri og landkönnun á Mekongfljóti

Móðurfljótið mikla hefur "göngu" sína í Suðaustur-Asíu, í tæplega 5.000 metra hæð í hlíðum Himalæjafjalla á austanverðri Tíbethásléttunni. Á 4200 kílómetra leið sinni rennur fljótið um Kína, Búrma, Taíland, Laos, Kambódíu og endar ferðina í Suður Kínahafi þar sem Saigonborg situr við árósana í Víetnam.

Á þessari stórkostlegu ferð verður áin þrædd þar sem því er komið við frá Taílandi niður til hafs. Hvar sem hægt er að sigla verður siglt. Eitt fljót, fjögur ríki, tugir þjóðabrota, fjórir bátar og óteljandi ævintýri.

Heimsóttar verða fornar höfuðborgir horfinna ríkja og voldugar borgir ráðandi ríkja, afskekkt þorp og einstakar fornminjar.

Á milljónum ára hefur Mekong-fljót borið fram frjóan jarðveg og flutt með sér fólk, menningu og tækni frá ofanverðum Indlandsskaga suður til Indókína. Mekong er matarkista manna og dýra, leikvöllur barna, þjóðbraut, vettvangur viðskipta, samkomustaður, landamæri ríkja, bústaður andanna og uppspretta þjóðsagna.

Talið er, að Markó Póló hafi á 13. öld farið yfir Mekong-fljót fyrstur Evrópumanna. Þremur öldum síðar fóru portúgalskir trúboðar um fljótið við Vientiane, höfuðborg Laos, og öld síðar fór hollenskur kaupmaður um fljótið á báti. Svo ung er ferðasaga Evrópumanna um fljótið.

Mekong er þriðja stærsta vatnsfall Asíu og hið 10. stærsta í heiminum, en það er enn ótamið og ósnortið miðað við mörg önnur stórfljót. Fram til 1996 hafði fljótið hvergi verið brúað í Suðaustur-Asíu, en í dag eru þar tvær brýr að finna – báðar í Laos. 1700 árum fyrr brúuðu Kínverjar fljótið vestan við Yunnanhérað. Saigon (HCMC) við ósa Mekong-fljóts er eina iðnvædda svæðið við bakka hennar. Til marks um náttúrulíf fljótsins má nefna, að einungis Amasónfljót býr yfir fjölbreyttara lífríki en þessi drottning Indókína.

Þar sem Mekong rennur um Kambódíu myndar fljótið Tonle Sap vatnið, sem er eitt stærsta ferskvatnsveiðisvæði í heiminum. Á regntímanum (frá maí til október) rís yfirborð Mekong-fljóts mikið – allt að átta metrum - og við það flæðir inn á uppþurrt Tonle Sap vatnasvæðið um 100 km langt náttúrulegt síki. Við það vex vatnið úr um 3000 km2 í um 7500 km2. Síðar, þegar árlegir þurrkatímar hefjast, skilar vatnið sér að nokkru leyti aftur til fljótsins þegar yfirboð þess verður lægra en yfirborð Tonle Sap. Þessir miklu straumar og breytingar skapa kjöraðstæður fjölbreytts lífríkis og mikillar veiði.

ÁFANGAR: Bangkok 2 dagar, Chiang Rai og norður Taíland 2 dagar, Mekong í norður Laos 2 dagar, Luang Prabang 3 dagar, Pakse 2 dagar, Mekong í suður Laos 3 dagar, Siem Reap og Angkor í Kambódíu 3 dagar, Mekong og Tonle sap 1 dagur, Phnom Penh 2 dagar, á Mekong til sjávar 6 dagar og Saigon 1 dagur.

Hápunktar: Ævintýralegur seiður Mekongfljótsins, hin ójarðneska borg Luang Prabang, leyndardómar Pakse og Champassak, stórfengleikar Angkor, einstök náttúra Tonle Sap, skringileikar Phnom Penh og nýlendubragur Saigon.

Framlenging: Tilvalið er að framlengja ferðina, t.d. á ströndum Taílands eða Víetnam.

Helstu upplýsingar
Nafn::
Mekong
Lengd::
21 dagur/20 nætur
Tegund::
Landkönnun
Brottför: :
Ódagsett
Verð:
Kr
Skoðið líka:
Grand Indókína Tour d'Angkor - hjólaferð
Sendu mér leiðarlýsingu!
Ferðaskrifstofan Óríental ehf. (c) 2011
oriental@oriental.is
Símanúmer 897 58 68 og +66-860902070(Taílandi) og Skype: viktorsveinsson
Óheimilt er að nota texta, myndir eða kort af netsíðunni án skriflegs leyfi félagsins. Með fyrirvara um prentvillur.